Skinfaxi - 01.01.2017, Page 23
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Þetta er ISCA
• ISCA (stendur fyrir International Sport and Culture Association) eru
alþjóðleg samtök ýmissa grasrótarsamtaka á sviði almenningsíþrótta og
menningar víða um heim.
• ISCA var sett á laggirnar árið 1995. Aðildarfélögin eru 231, félagsmenn
rúmar 40 milljónir í yfir 83 löndum.
• UMFÍ er aðili að samtökunum og fylgir Hreyfivikunni eftir á Íslandi.
• Viðburðir á Íslandi hafa verið afar fjölbreyttir, allt frá því að prestur á Egils-
stöðum bauð sókninni í gönguferð. Grindvíkingar hafa boðið upp á
fjölskylduratleik. Bolvíkingar buðu heimamönnum frítt í sund og leik, á
Grundarfirði var boðið upp á ókeypis golf á golfvellinum og opna tíma í
líkamsrækt. Þá tók ÍBR þátt í Hreyfiviku UMFÍ og gaf öllum grunnskólum í
Reykjavík snú-snú-bönd.
Hvernig gengur
að ná markmiðinu?
Markmið Hreyfivikunnar er að fá 100 milljón
Evrópubúa til að hreyfa sig meira og reglulega
fyrir árið 2020. Hvernig gengur að ná því?
„Þetta er pólitíska markmiðið okkar. En ég
er ekki pólitísk heldur draumóramanneskja.
Ég ætla að gera þetta að veruleika og ég trúi
því að það takist enda eru allir þátttakendur
og boðberar að gera frábæra hluti. Það eina
sem við þurfum að gera er að halda áfram,
hvetja fólk til að hreyfa sig og gera fólki kleift
að hreyfa sig. Það þarf að vinna að þessu af
hugsjón,“ segir Laska.
Alltaf að hlusta
á grasrótina
Á síðustu ráðstefnu ISCA um Hreyfivikuna
fjallaði fulltrúi Íslands um sundkeppni sveit-
arfélaga. Þessi sundkeppni varð til hjá gras-
rótinni sem vildi taka þátt með þessum hætti.
UMFÍ greip boltann og hélt honum á lofti.
Sundkeppnin hefur slegið í gegn og leggja
margir þátttakendur mikið á sig svo að sveit-
arfélag þeirra vinni.
Laska, finnst þér mikilvægt að hlusta á fólk
og heyra hvaða hugmyndir það hefur sem
geta stutt við verkefnið?
„Það er eina leiðin! Hreyfivikan er byggð á
grasrótarstarfi. Ég vinn aðeins með grasrót-
inni. Pólitíkusar eru takmarkaðir og hafa mis-
mikil áhrif. Ef hugmyndirnar koma frá fólki,
grasrótinni, þá fyrst fara hlutir að hreyfast,“
segir Laska Nenova, verkefnastjóri Hreyfi-
vikunnar í Evrópu.
Í skýrslu ISCA, sem kom út árið 2015, kemur fram
að um 25% fullorðinna íbúa aðildarríkja Evrópu-
sambandsins hreyfi sig of lítið. Hreyfingarleysið
eða skortur á reglulegri hreyfingu er nú talið
alvarlegur lýðheilsuvandi. Skrifa megi of litla
hreyfingu á um 6% af öllum dauðsföllum á
heimsvísu. Það samsvarar því að 3,2 milljónir
manna látist af völdum of lítillar hreyfingar. Þetta
eykur álag og kostnað hjá heilbrigðiskerfinu. Kai Troll hjá ISCA vill sjá fag-
fólk í stjórnum frjálsra
félagasamtaka vinna fyrir félagsmenn.
„Stjórnir frjálsra félagasamtaka eiga að
vera saman settar af fagfólki með fjölbreytta
reynslu og tengsl víða, í stjórnmálum og
atvinnulífinu. Þær eiga allra síst að vera sam-
an settar af fólki sem vill komast í þægilegar
og rólegar stöður,“ segir Kai Troll, þróunar-
stjóri hjá ISCA.
Troll á langan feril að baki hjá félögum sem
skipuleggja íþróttaviðburði aðra en þá sem
tengjast afreksíþróttum. Hann hefur meðal
annars verið forstöðumaður hjá Special
Olympics, verið fulltrúi Special Olympics hjá
Alþjóðlegu Ólympíunefndinni og verið hátt-
settur ráðgjafi hjá Boston Consulting Group
í Brussel og New York, fyrirtæki sem hefur
unnið skýrslur um íslensku ferðaþjónustuna
og um heilbrigðiskerfið hér á landi. Hugur
hans hefur síðustu misserin verið í félaga-
samtökunum Best buddies, sem vinnur að
því að gera fötluðum kleift að stunda íþróttir
með ófötluðum.
Troll var á landinu fyrr á þessu ári og gaf
sér tíma til að funda með framkvæmdastjóra
og nokkrum starfsmönnum UMFÍ ásamt
fleirum í íþróttahreyfingunni.
Auðheyrt var á Troll að honum er um-
hugað um almenningsíþróttir og ósam-
ræmið við afreksíþróttir, þá hlið íþrótta sem
fær mestu athyglina og peningana.
Hann vill styrkja stjórnir félaga sem sinna
almenningsíþróttum. Til að breyta því þurfi
stjórnir félagasamtakanna að vera virkar,
þær afli fjármagns og láti iðkendur taka eftir
því að stjórnirnar séu að sinna þeim.
Stjórnarseta á ekki
að vera þægileg