Skinfaxi - 01.01.2017, Page 37
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 37
„Það má alveg búast við allt að 200 manns í
boccía í Hveragerði. Ef það verður raunin þá
verður þetta mesti fjöldi þátttakenda til þes-
sa í greininni,“ segir Flemming Jessen, sem
situr í framkvæmdanefnd Landsmóts UMFÍ
50+ er haldið verður í Hveragerði 23.–25. júní
nk. og einn af þremur keppnisstjórum.
Til samanburðar voru 130 keppendur
skráðir til leiks í boccía á Landsmót UMFÍ 50+
þegar það var haldið á Blönduósi árið 2015.
Það er mesti fjöldi keppenda til þessa.
Flemming er reynslubolti á sviði íþrótta,
hann hefur komið að öllum Landsmótum
UMFÍ 50+ í gegnum tíðina og skipulagt að
auki fjölda móta í boccía.
Búist er við miklum fjölda keppenda á
Flestir vilja keppa í boccía
Landsmót UMFÍ 50+ í Hveragerði í júní enda
bærinn nálægt höfuðborgarsvæðinu og þétt-
býlisstöðum á Suðurlandi.
Boccía hefur í gegnum tíðina verið afar vin-
sæl grein. Þetta setur pressu á skipuleggj-
endur að raða í riðla, senda tímasetningar
á liðin og fleira tengt greininni, að sögn
Flemmings sem bætir við að mikil vinna sé
framundan fyrir mótið í Hveragerði.
Flemming Jessen segir stefna í metþátttöku í boccía
á Landsmóti UMFÍ 50+ sem fram fer í Hveragerði í júní.
Sagnaritarinn Jón M. Ívarsson hefur gef-
ið út bók með vísum sem hann lauk
að mestu við fyrir tuttugu árum. Hann
segir fáa útvalda til að bera Grettisbeltið.
„Ég bókstaflega varð að skrifa bók um
glímukappa í bundnu máli,“ segir sagnfræð-
ingurinn Jón M. Ívarsson frá Vorsabæjarhóli.
Hann hefur samið og gefið út frumortar vísur
um 19 glímukónga frá árinu 1969 í bókinni
Annað Íslandskappatal. Myndir eru af öllum
glímuköppunum ásamt vísum þeim tengd-
um. Íslenska glíman hefur gjarnan verið köll-
uð þjóðaríþrótt Íslendinga.
Jón segir svo frá um tilurð bókarinnar í
formála að árið 1997 hafi Hreinn Erlendsson
frá Dalsmynni í Biskupstungum verið ráðinn
í starf hlaupstjóra í frjálsum íþróttum á Smá-
þjóðaleikunum. „Rétt fyrir mótið fékk ég sím-
tal þar sem mér var tjáð að Hreinn væri látinn,
hefði orðið bráðkvaddur og þar með var mér
boðið að taka við starfi hans. Mér varð mikið
um þessa fregn en gat ekki neitað þeirri bón.
Um kvöldið var ég í nokkru uppnámi og festi
Samdi vísur um 19 glímukappa
Um Grettisbeltið
Íslandsglíman hófst árið 1906 og er elsta íþróttamót á Íslandi. Þar ganga glímu-
kappar árlega á hólm og keppa um verðlaunagripinn Grettisbeltið. Sigurvegarinn
hlýtur sæmdartitilinn Glímukóngur Íslands. Beltið er skrautbúið silfurbelti mað
ágrafinni mynd fornkappans Grettis Ásmundssonar og er letrað á það:
„Glímuverðlaun Íslands Grettir.“ Beltinu fylgir leðuról sem alsett er silfurskjöldum
en á hvern skjöld er skráð nafn Glímukóngs Íslands hverju sinni. Fyrir hvern nýjan
silfurskjöld sem bætist við er á elsti fjarlægður í staðinn.
Mikið efni liggur eftir Jón M. Ívarsson um sögu ungmennafélagshreyf-
ingarinnar. Hann skrifaði meðal annars ritið Vormenn Íslands, sem er
saga Ungmennafélags Íslands.
ekki svefn. Þá greip ég af handahófi kver úr
bókahillunni til lestrar til að dreifa huganum.
Það reyndist vera Íslandskappatal Lárusar
Salómonssonar, sem hann orti og gaf út til
heiðurs glímukóngum Íslands árið 1969,“
skrifar Jón.
Hann ákvað að taka við keflinu, halda
áfram með kappatal Lárusar og orti Jón vísur
með sama hætti og Lárus á tveimur dögum.
Tíminn leið, bókin kom ekki út og bætti Jón
jafnóðum við glímuköppum og nýir menn
gyrtust Grettisbeltinu. Árið 2006 lagði Jón
verkið til hliðar og kom það ekki út fyrr en í
lok mars á þessu ári.
Jón segir fáa útvalda til að bera Grettis-
beltið. „Stundum er aðeins örstutt bil milli
sigurs og byltu. Menn hafa gengið til leiks
fullir kapps og vongleði án þess að bera sigur
úr býtum,“ segir hann. Með það í huga bætti
hann við þremur afreksmönnum sem unnu
allar orrustur glímunnar nema Íslandsglím-
una. Kapparnir eru þeir Sigurður Jónsson,
Arngeir Friðriksson og Stefán Geirsson.
Opna úr bókinni Annað Íslandskappatal. Hér er fjallað um Þingeying-
inn Pétur Vigni Ingvason.
Opnað verður fyrir skráningar á
Landsmót UMFÍ 50+ 1. júní
næstkomandi. Nánari upplýsingar
eru á www.umfi.is og á viðburða-
síðu mótsins á Facebook.