Skinfaxi - 01.01.2019, Qupperneq 4
4 SKINFAXI
R
addir, við heyrum þær alls staðar.
Raddir sem við heyrum með eyrun-
um, raddir sem við heyrum með
hjartanu (svo eru það raddirnar inni
í höfðinu á okkur sem enginn annar
heyrir en þær eru annað mál). Síðan eru
það raddirnar sem eru í uppáhaldi hjá
mér, raddir ungmenna!
Alltof oft heyri ég ungmenni segja:
„Af hverju ætti ég að segja það sem mér
finnst? Það hlustar hvort eð er enginn á
mig!“
En hafið ekki áhyggjur. Þótt að erfitt geti
verið að láta heyra í sér, stundum mjög
erfitt, er til fólk sem leggur við hlustir.
Síðastliðin sex ár hefur síðasta vikan
fyrir páska verið besti tími ársins í lífi mínu.
Þá koma saman nærri því hundrað ung-
menni alls staðar að af landinu, á hina
árlegu ungmennaráðstefnu Ungt fólk og
lýðræði (UFL) sem ungmennaráð UMFÍ
stendur fyrir. Þarna fá ungmenni tækifæri
til að segja skoðun sína á samfélaginu.
Þessar skoðanir hafa verið alveg geggjað-
ar. Það er hreinn unaður að fá að koma
og vera með öllu þessu unga fólki og
finna fyrir því að þarna er framtíðin komin.
Framtíðin er okkar og ég get ekki beðið
eftir henni.
Ungmenni hafa nefnilega skoðun á svo
mörgu, pólitík og umhverfismálum, geð-
heilbrigði, samgöngumálum og mennta-
málum – þau hafa skoðun á ÖLLU!
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði hefur
í gegnum árin verið uppspretta margra
hugmynda. Þar má nefna #718-herferð-
ina sem ætlað var að vekja athygli á and-
legum veikindum ungmenna og frumvarp
sem fór inn á Alþingi um lækkun kosninga-
aldurs í sveitarstjórnarkosningum. En ráð-
stefnan hefur líka búið til tækifæri fyrir
ungt fólk, sem dæmi má nefna málþing
um umferðaröryggi og ungmennalýðræði
og svo mætti lengi telja.
Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði hefur
líka verið hvatning fyrir ungmenni alls
staðar á landinu til þess að virkja jafn-
aldra sína innan sveitarfélagsins og stofna
með þeim ungmennaráð. Það gefur þeim
kraft til að láta rödd sína heyrast í nær-
umhverfinu. Það skiptir máli.
Þegar ráðstefnan var fyrst haldin, árið
2009, voru ungmennaráð í fjórtán sveit-
arfélögum. Núna eru ráðin í 42 sveitar-
félögum, takk fyrir. Til viðbótar má ekki
gleyma þeim ótal ungmennaráðum sem
eru innan félagasamtaka, eins og ung-
mennaráð UMFÍ sem hefur rutt margar
brautir. Þessi árangur hefði aldrei orðið
ef ekki væri fyrir þau ungmenni sem létu
í sér heyra.
Við erum hvergi nærri hætt því að alltaf
má gera betur. Rödd okkar þarf að heyr-
ast víðar.
Ég get varla beðið eftir næstu ráðstefnu.
Ég er svo spennt. Næsta ráðstefna verð-
ur haldin í Borgarnesi dagana 10.–12.
apríl. Þar hlakka ég til að sjá fólk sem ég
hef kynnst á fyrri
ráðstefnum,
kynnast nýj-
um og hlusta
á mínar uppá-
halds RADDIR!
Ungt fólk er
ekki bara
framtíðin,
við erum
til núna
og höfum
áhrif í
dag!
Sjáumst
í Borgar-
nesi!
Efnisyfirlit
8–9 Óformlegt nám og félagsfærni
á nýjum stað
24–25 Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna eru dyr að betri heimi
43 Iðkendur eru hluti af
fjölskyldunni
6 Fólk kynnist nýjum greinum
10 Áherslan á kynjajafnrétti og
jaðarhópa í íþróttum
12 Íþróttahreyfingin þarf að ná betur
til fatlaðra
21 Félög í vanda leita til UMFÍ
22 Hefur áhyggjur af veðmálum
íþróttafólks
26 Gott að vita hvert er hægt að leita
28 Heimasíðan er andlit félaga
30 Námskeið sameina aðildarfélögin
32 Stelpur halda áfram að hreyfa sig
33 Hvernig er staðan á þínu svæði?
34 Gaman þegar fólk heldur áfram
að stunda íþróttir
36 5 ráð til að fjölga sjálfboðaliðum
37 Nokkur ráð við að taka myndir á
farsíma
38 Viðbragðsáætlun Æskulýðs-
vettvangsins
40 Börnin þekkja pannavellina
frá Unglingalandsmótinu
Leiðari Raddir ungs fólks
14–19 Við eigum ekki að vera
hrædd við tæknina
Elísabet Kristjánsdóttir situr
í ungmennaráði UMFÍ.