Skinfaxi - 01.01.2019, Page 6
6 SKINFAXI
Skinfaxi 1. tbl. 2019
Skinfaxi, tímarit Ungmennafélags Íslands
(UMFÍ), hefur komið út samfleytt síðan
árið 1909. Tímaritið, sem kemur út
ársfjórðungslega, dregur nafn sitt af
hestinum fljúgandi sem dró vagn goð-
sagnaverunnar Dags er ók um himin-
hvolfið í norrænum sagnaheimi.
RITSTJÓRI
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson.
ÁBYRGÐARMAÐUR
Haukur Valtýsson, formaður UMFÍ.
RITNEFND
Gunnar Gunnarsson formaður, Eiður
Andri Guðlaugsson, Elísabet Ásdís
Kristjánsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir
og Örn Guðnason.
UMBROT OG HÖNNUN
Indígó.
LJÓSMYNDIR
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, Eysteinn
Auðar Jónsson, Haraldur Jónasson,
Gunnar Gunnarsson, Hafsteinn Snær
Þorsteinsson, Jón Aðalsteinn Bergsveins-
son, Oscar Rybinski, Ólafur Þór Jónsson,
Sabína Steinunn Halldórsdóttir o.fl.
PRÓFARKALESTUR
Helgi Magnússon.
AUGLÝSINGAR
Styrktarsöfnun.
PRENTUN
Oddi.
FORSÍÐUMYND
Forsíðumyndina tók Ólafur Þór Jónsson
á Paralympics-deginum í Laugardalshöll
í september árið 2018. Á Paralympic-
deginum geta gestir kynnt sér starfsemi
aðildarfélaga Íþróttasambands fatlaðra
og prófað ýmsar íþróttir.
STJÓRN UMFÍ
Haukur Valtýsson, formaður,
Örn Guðnason, varaformaður,
Hrönn Jónsdóttir, ritari,
Guðmundur Sigurbergsson, gjaldkeri,
Ragnheiður Högnadóttir, meðstj.,
Gunnar Gunnarsson, meðstjórnandi,
og Jóhann Steinar Ingimundarson,
meðstjórnandi.
VARASTJÓRN UMFÍ
Sigurður Óskar Jónsson,
Gunnar Þór Gestsson,
Lárus B. Lárusson og
Helga Jóhannesdóttir.
SKRIFSTOFA UMFÍ/SKINFAXA
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík,
sími: 568 2929.
umfi@umfi.is
www.umfi.is
STARFSFÓLK UMFÍ
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri, Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, kynning-
arfulltrúi og ritstjóri Skinfaxa, Ómar
Bragi Stefánsson, landsfulltrúi og fram-
kvæmdastjóri Landsmóta (með aðsetur
á Sauðárkróki), Sabína Steinunn Hall-
dórsdóttir, landsfulltrúi og verkefna-
stjóri, Ragnheiður Sigurðardóttir, lands-
fulltrúi og verkefnastjóri, og Guðbirna
Kristín Þórðardóttir, ritari.
UMFÍ
Ungmennafélag Íslands, skammstafað
UMFÍ, er landssamband ungmenna-
félaga á Íslandi. UMFÍ var stofnað á
Þingvöllum 2. ágúst 1907.
Sambandsaðilar UMFÍ eru 29 talsins.
Í hreyfingunni eru nú um 160.000
félagar í rúmlega 300 ungmenna- og
íþróttafélögum um land allt.
„Ég hef verið duglegur við að fá fólk til að koma og prófa. Öll-
um finnst það gaman. Starfsmannafélög og vinnuhópar eru dug-
leg við að koma og það skilar sér í iðkendum. Svo þarf fólk
ekki að eiga boga og annan búnað því að við lánum allt, boga,
örvar og skotmörk og bjóðum upp á heimilislega og góða
aðstöðu undir stúkunni á Torfunesi,“ segir Kristján G. Sigurðs-
son, bogfimiþjálfari og aðalsprauta bogfimideildarinnar á
Ísafirði.
Skotfélag Ísafjarðar hlaut um síðustu áramót hvatningarverð-
laun Ísafjarðarbæjar 2018. Félagið fékk verðlaunin fyrir öflugt
starf bogfimideildarinnar. Deildin er innan Skotíþróttafélagsins
og er til þess að gera ný, stofnuð árið 2015. Skotíþróttafélag
Ísafjarðar er aðildarfélag Héraðssambands Vestfirðinga (HSV),
sambandsaðila UMFÍ.
Kristján segir íbúa Ísafjarðarbæjar hafa úr mörgum íþróttum
að velja og því sé auðvitað svolítið krefjandi að kynna nýja
grein til sögunnar í bænum. „Eins og allir vita eru skíðaíþróttir
öflugar hér og körfubolti og fótbolti líka. Margir spila golf og
svo hlaupa aðrir. Ég hef því reynt að höfða til þeirra sem passa
ekki inn í hefðbundnar íþróttir,“ segir Kristján og bætir við að
fólk á öllum aldri hafi komið til að reyna sig í bogfimi. Þeir sem
það geri falli fyrir íþróttinni.
Bogfimi er fyrir alla aldurshópa
Á meðal þeirra sem hafa sýnt bogfimi áhuga er nemandi við
Menntaskóla Ísafjarðar en hann fékk að æfa bogfimi sem val á
öðrum vetri í íþróttanámi skólans.
Eldri borgarar eru á meðal þeirra sem eru áhugasamir um bog-
fimi.„Hjá okkur er áreiðanlega elsti iðkandi á landinu. Sá er
82 ára og nýhættur að spila golf því að hann átti orðið erfitt
með að ganga langar vegalengdir. En hann getur dregið boga,
keypti sér einn slíkan og er mjög áhugasamur,“ segir Kristján.
Fólk kynnist nýjum
greinum þegar það
fær að prófa
Facebook virkar best
Bogfimideildin á Ísafirði er lítið auglýst út á við. Deildin
er með einfalda vefsíðu sem Kristján bjó til og þar er
helstu upplýsingar að finna. Hann segir Facebook-síðu
deildarinnar samt virka best til að vekja athygli á starf-
seminni. Kristján setur inn fréttir um bogfimideildina á
Facebook og deilir þar ýmsu áhugaverðu um bogfimi úti
í hinum stóra heimi. „Facebook gerði gæfumuninn fyrir
okkur. Fólk fylgist með okkur þar og deilir efni af henni
fyrir deildina. Það vefur utan á sig. Facebook þrælvirkar
og vakti athygli á okkur út fyrir svæðið,“ segir hann.
Facebooksíðan: https://www.facebook.com/isboginn/
Skotíþróttafélag Ísafjarðar hlaut í ársbyrjun hvatningar-
verðlaun Ísafjarðar 2018. Kristján bogfimiþjálfari segir
bogfimi höfða til þeirra sem passa ekki inn í hefðbundnar íþróttir.