Skinfaxi - 01.01.2019, Síða 9
SKINFAXI 9
Þ
egar ráðist var í framkvæmdir í heimavist Íþróttakennara-
skólans á Laugarvatni fannst margt gamalla muna frá fyrri
tíð. Þeir munu fá sérstakan sess í Ungmenna- og tómstunda-
búðunum. Þar á meðal er fótbolti sem notaður var á 12.
Landsmóti UMFÍ er haldið var á Laugarvatni sumarið 1965.
Þetta mót hefur verið kallað móðir allra Landsmóta. Veður var
einmuna gott um mótshelgina og sóttu það í kringum tuttugu þús-
und manns í sól og blíðu. Landsmótið er með þeim þekktari í
sögu UMFÍ. Þar var eins og ætíð keppt í ýmsum greinum á dag-
inn en hljómsveitir skemmtu á kvöldin. Þar á meðal voru heitustu
bönd landsins á borð við Hljóma. Hljómsveitin Mánar frá Selfossi
komu þar í fyrsta sinn fram og var söngvarinn og gítarleikarinn
Ólafur Þórarinsson, ætíð þekktur sem Labbi í Mánum, þá aðeins
15 ára.
Fjölbreytt starfsemi hefur verið í Íþróttamiðstöðinni á Laug-
arvatni í gegnum tíðina. Um árabil sváfu þar nemendur
Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni. Þar var líka
íþróttamiðstöð á vegum UMFÍ, ÍSÍ og menntamálaráðuneytis
og það var nýtt til námskeiðahalds, fyrir æfingabúðir og alls
konar íþróttatengda starfsemi.
Hlutverk Íþróttakennaraskólans á Laugarvatni var m.a. að
búa nemendur undir kennslu í skólaíþróttum og skyndihjálp
og enn fremur að búa nemendur undir kennslu í íþróttum og
félagsstörfum hjá ungmenna- og íþróttafélögum og stofnun-
um. Námið var í tvö ár eða fjögur misseri. Inntökuskilyrði í
Íþróttakennaraskólann voru þau að nemandi væri heilsu-
hraustur og vel hæfur til íþróttaiðkana og ekki yngri en 18
En aftur að boltanum. Á hann ritaði knattspyrnulið Ungmenna-
félags Keflavíkur nöfn sín. Eitt nafn á boltanum vekur athygli.
Þar var á ferðinni Rúnar Júlíusson sem var á þessum tíma bæði
stórstjarna í fótbolta og á tónlistarsviðinu en eins og þjóðin veit
var hann einn fjórmenninganna í Hljómum. Á mótinu spilaði
Rúnar í liðinu og varði kvöldunum á sviðinu með félögum sínum
í Hljómum.
Spileríið kom ekki niður á hæfileikum Rúnars á vellinum því
að liðið varð Landsmótsmeistari í knattspyrnu. Rúnar sneri aftur
á Laugarvatn með Hljómum þrjátíu árum síðar þegar Landsmót
UMFÍ var haldið þar árið 1994 og mundi vel eftir því þegar
hann sótti mótið þrjátíu árum fyrr.
Boltinn frá móður allra landsmóta
Íþróttaandinn í húsinu ára á árinu, reglusamur, heilbrigður og góður félagi. Krafist
var stúdentsprófs, kennaramenntunar eða annarrar uppeldis-
menntunar. Á heimavistinni í Íþróttamiðstöðinni rúmuðust 58
nemendur og var hvert herbergi fyrir tvo nemendur.
Þegar Háskóli Íslands ákvað að flytja nám í íþrótta- og
heilsufræðum frá Laugarvatni til Reykjavíkur afsalaði ríkis-
sjóður sér eigninni og fékk sveitarfélagið Bláskógabyggð
hana að fullu í ágúst árið 2017. Með fylgdu íþróttahúsið og
sundlaugin.
Helgi Kjartansson, oddviti Bláskógabyggðar, minntist þess
einmitt við undirritun samnings við UMFÍ þar sem hann sat
með Hauki Valtýssyni, formanni UMFÍ, að hann hafi notað
sama penna til að skrifa undir samninginn þegar Benedikt
Jóhannesson, þá fjármála- og efnahagsráðherra, skrifaði
undir fyrir hönd ríkisins.