Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI Margir segjast eignast vini í fyrsta sinn þegar þeir fara að stunda íþróttir. Þjálfari í badminton í Bolungarvík telur að í framtíðinni muni fleiri fatlaðir og ófatlaðir æfa saman í minni bæjarfélögum. Íþróttahreyfingin þarf að vinna með sameiginlegu átaki að því að ná betur til fatlaðra ungmenna- og íþróttafélaga. Hlut- fallslega virðist fáir vera virkir, sé tekið mið af fjölda iðkenda á aldrinum 12–18 ára innan raða Íþróttasambands fatlaðra, að mati Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra Special Olympics á Íslandi. Hún segir einstaka greinar, sem fatlaðir æfi, hafa náð að eflast en aðrar ekki. „Þar sem íþróttafélög fatlaðra eru til staðar virð- ast margir sækja í þau félög, frekar en almenn íþróttafélög sem bendir á mikilvægi þess að hafa slík félög sem valkost. Íþrótta- samband fatlaðra hefur hvatt til þess að allir eigi val, allt sé rétt og ekkert rangt í því hvar fólk vill æfa, hvort sem er með sérstöku félagi fyrir fatlaða eða almennu íþróttafélagi,“ segir hún. Íþróttahreyfingin þarf að ná betur til fatlaðra Hvað kemur í veg fyrir æfingar? Anna telur að greina þurfi hvað það sé sem haldi aftur af ungu fólki með sérþarfir, sem hafi áhuga á að stunda íþróttir en geri það ekki. Hún telur ástæðurnar geta verið mismunandi. En skoða þurfi hvort um sé að ræða hvort þau fái ekki tækifæri til þess eða að þau upplifi sig ekki velkomin á æfingar. Jafnvel geti verið að aðgengismál eða annað sem hugsanlega tengist sjálfsmynd þeirra komi í veg fyrir að þau stundi íþróttir. „Það er þess virði að skoða þetta betur því margir segjast eignast í fyrsta skipti vini, þegar komið er í raðir Íþróttasam- bands fatlaðra. Það er athyglisvert og skiptir gríðarlega miklu máli að horfa ekki fram hjá því hve þessi þáttur er mikilvægur,“ segir hún. Anna heldur áfram: „Íþróttastarf er margvíslegt en það hefur sýnt sig að jákvæð upplifun af þátttöku í íþróttum getur stuðlað að sterkari sjálfsmynd, aukinni færni í ýmsum verkefnum dag- legs lífs og ekki síst náð að skapa vináttusambönd og félags- legt tengslanet. Jaðaráhrif íþróttastarfsins, ekki síst félagsleg áhrif, skipta miklu máli fyrir hvern einstakling.“

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.