Skinfaxi - 01.01.2019, Page 12
12 SKINFAXI
Margir segjast eignast vini í fyrsta sinn
þegar þeir fara að stunda íþróttir. Þjálfari
í badminton í Bolungarvík telur að í
framtíðinni muni fleiri fatlaðir og ófatlaðir
æfa saman í minni bæjarfélögum.
Íþróttahreyfingin þarf að vinna með sameiginlegu átaki að
því að ná betur til fatlaðra ungmenna- og íþróttafélaga. Hlut-
fallslega virðist fáir vera virkir, sé tekið mið af fjölda iðkenda
á aldrinum 12–18 ára innan raða Íþróttasambands fatlaðra,
að mati Önnu Karólínu Vilhjálmsdóttur, framkvæmdastjóra
Special Olympics á Íslandi.
Hún segir einstaka greinar, sem fatlaðir æfi, hafa náð að eflast
en aðrar ekki. „Þar sem íþróttafélög fatlaðra eru til staðar virð-
ast margir sækja í þau félög, frekar en almenn íþróttafélög sem
bendir á mikilvægi þess að hafa slík félög sem valkost. Íþrótta-
samband fatlaðra hefur hvatt til þess að allir eigi val, allt sé rétt
og ekkert rangt í því hvar fólk vill æfa, hvort sem er með sérstöku
félagi fyrir fatlaða eða almennu íþróttafélagi,“ segir hún.
Íþróttahreyfingin þarf
að ná betur til fatlaðra
Hvað kemur í veg fyrir æfingar?
Anna telur að greina þurfi hvað það sé sem haldi aftur af ungu
fólki með sérþarfir, sem hafi áhuga á að stunda íþróttir en geri
það ekki. Hún telur ástæðurnar geta verið mismunandi. En
skoða þurfi hvort um sé að ræða hvort þau fái ekki tækifæri til
þess eða að þau upplifi sig ekki velkomin á æfingar. Jafnvel
geti verið að aðgengismál eða annað sem hugsanlega tengist
sjálfsmynd þeirra komi í veg fyrir að þau stundi íþróttir.
„Það er þess virði að skoða þetta betur því margir segjast
eignast í fyrsta skipti vini, þegar komið er í raðir Íþróttasam-
bands fatlaðra. Það er athyglisvert og skiptir gríðarlega miklu
máli að horfa ekki fram hjá því hve þessi þáttur er mikilvægur,“
segir hún.
Anna heldur áfram: „Íþróttastarf er margvíslegt en það hefur
sýnt sig að jákvæð upplifun af þátttöku í íþróttum getur stuðlað
að sterkari sjálfsmynd, aukinni færni í ýmsum verkefnum dag-
legs lífs og ekki síst náð að skapa vináttusambönd og félags-
legt tengslanet. Jaðaráhrif íþróttastarfsins, ekki síst félagsleg
áhrif, skipta miklu máli fyrir hvern einstakling.“