Skinfaxi - 01.01.2019, Síða 23
SKINFAXI 23
Karlar í vanda en konur ekki
Spilavandi reyndist meiri hjá körlum og töldust 14,4% karla
glíma við spilavanda eða voru í nokkurri áhættu á að þróa
með sér spilavanda. Engin kona var hins vegar í þeim hópi.
Guðmundur segir í ritgerðinni að það að hlutfall veðmála
á leiki eigin deildar og eigin leiki sé hærra meðal leikmanna,
sem stunda handboltagetraunir, geti stutt þá hugmynd að
freistnivandi til að hagræða úrslitum verði meiri meðal þessara
leikmanna.
Áhyggjur og bann við veðmálum
Þátttakendur voru spurðir hvort þeir teldu að HSÍ ætti að hafa
áhyggjur af því hvort að leikmenn eða þjálfarar væru að veðja
á leiki í íslenskum handbolta. Rúmlega 47% leikmanna töldu að
HSÍ ætti ekki að hafa áhyggjur, 29,3% voru hlutlausir en alls
23,4% leikmanna töldu að HSÍ ætti að hafa áhyggjur af því
hvort leikmenn eða þjálfarar væru að veðja á leiki í íslenskum
handbolta. Fleiri konur (29,8%) voru sammála því að HSÍ ætti
að hafa áhyggjur en karlar (16,9%).
Þátttakendur voru leikmenn íslenskra félagsliða í hand-
bolta sem voru skráð í Íslandsmót Handknattleiks-
sambands Íslands (HSÍ) veturinn 2017/2018. Sam-
kvæmt HSÍ eru 20 lið með um það bil 812 íslenska
leikmenn, 18 ára og eldri skráða til leiks og tóku 309
leikmenn þátt í rannsókninni sem er rúmlega 38% af
heildarfjölda leikmanna. Þátttakendur voru á aldrinum
18–42 ára og skiptust í 174 karla og 135 konur.
Íþróttagetraunir eru vinsælasta tegund peningaspila
en 6,5% leikmanna, sem þátt tóku í könnuninni,
veðjuðu vikulega eða oftar á úrslit eða atburði ýmissa
íþrótta. Næstvinsælasta peningaspilið er póker ásamt
spilakössum og lottó.
Karlar
28,8%
spila vikulega eða oftar.
13,8%
glíma við spilavanda.
HVERJIR VEÐJA?
VEÐMÁL
Konur
2,3%
spila vikulega eða oftar.
0,6%
glíma við spilavanda.