Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.2019, Page 31

Skinfaxi - 01.01.2019, Page 31
 SKINFAXI 31 „Landsmót UMFÍ 50+ skiptir máli fyrir fólk sem hefur bæði gaman af því að hreyfa sig og hitta aðra. Það er gaman að sjá fólk koma á mótið sem hefur ekki stundað íþróttir síðan í æsku og rifja upp hvað það var gaman að stunda íþróttir og hreyfa sig með öðrum. Á mótum UMFÍ verða til góðar minn- ingar fyrir þátttakendur. Landsmót UMFÍ 50+ hefur mikla þýðingu fyrir samfélag- ið og það ætti að skilja eftir sig upp- byggingu og þekkingu í sveitarfélaginu sem heldur mótið,“ segir Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ. Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið víða um land frá árinu 2011. Í ár verður það í Neskaupstað dagana 28.–30. júní og í Borgarnesi sumarið 2020. Nú er komið að því að finna móts- stað árið 2021. Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og skemmtun þar sem fólk á besta aldri blómstrar í hreyfingu. Mótið er opið öllum þátttakendum, sem verða 50 ára og eldri, óháð því hvort viðkomandi er skráður í ungmenna- eða íþróttafélag. Landsmót UMFÍ 50+ er frábært tækifæri fyrir mótshaldara til að vekja athygli á lýðheilsu og möguleikunum í sveitarfélagi sínu. Gera verður ráð fyrir allt að 1.000 þátttakendum á mótinu frá öllu landinu og tvö- til þrefalt fleiri gestum. Umsóknarfrestur er til 1. júní næstkomandi. Umsóknareyðublað og ítarlegar upplýsingar um Landsmót UMFÍ 50+ má nálgast í þjónustumiðstöð UMFÍ eða með því að senda póst á netfangið umfi@umfi.is. Fólk, sem hefur ekki stundað hreyfingu síðan í æsku, kemur á mót UMFÍ auglýsir eftir mótshaldara fyrir 11. Landsmót UMFÍ 50+ sumarið 2021 Auður Inga Þor- steinsdóttir, fram- kvæmdastjóri UMFÍ.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.