Skinfaxi - 01.01.2019, Síða 31
SKINFAXI 31
„Landsmót UMFÍ 50+ skiptir máli fyrir
fólk sem hefur bæði gaman af því að
hreyfa sig og hitta aðra. Það er gaman
að sjá fólk koma á mótið sem hefur ekki
stundað íþróttir síðan í æsku og rifja
upp hvað það var gaman að stunda
íþróttir og hreyfa sig með öðrum.
Á mótum UMFÍ verða til góðar minn-
ingar fyrir þátttakendur. Landsmót UMFÍ
50+ hefur mikla þýðingu fyrir samfélag-
ið og það ætti að skilja eftir sig upp-
byggingu og þekkingu í sveitarfélaginu
sem heldur mótið,“ segir Auður Inga
Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ.
Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið víða um land frá árinu
2011. Í ár verður það í Neskaupstað dagana 28.–30. júní og
í Borgarnesi sumarið 2020. Nú er komið að því að finna móts-
stað árið 2021.
Landsmót UMFÍ 50+ er blanda af íþróttakeppni og skemmtun
þar sem fólk á besta aldri blómstrar í hreyfingu. Mótið er opið
öllum þátttakendum, sem verða 50 ára og eldri, óháð því hvort
viðkomandi er skráður í ungmenna- eða íþróttafélag.
Landsmót UMFÍ 50+ er frábært tækifæri fyrir mótshaldara til
að vekja athygli á lýðheilsu og möguleikunum í sveitarfélagi
sínu. Gera verður ráð fyrir allt að 1.000 þátttakendum á mótinu
frá öllu landinu og tvö- til þrefalt fleiri gestum.
Umsóknarfrestur er til 1. júní næstkomandi.
Umsóknareyðublað og ítarlegar upplýsingar um Landsmót
UMFÍ 50+ má nálgast í þjónustumiðstöð UMFÍ eða með því
að senda póst á netfangið umfi@umfi.is.
Fólk, sem hefur ekki stundað hreyfingu
síðan í æsku, kemur á mót
UMFÍ auglýsir eftir mótshaldara fyrir
11. Landsmót UMFÍ 50+ sumarið 2021
Auður Inga Þor-
steinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri UMFÍ.