Skinfaxi - 01.01.2019, Síða 32
32 SKINFAXI
Margir þættir valda því að unglingar missa áhuga á íþróttum.
Þar á meðal eru tímaskortur, stytting framhaldsnáms, æfinga-
álag og stuðningur við iðkunina.
Stelpur á Akureyri vantar stuðning og jákvæðara viðmót við
íþróttaiðkun sína. Þótt þær hætti að stunda íþróttir í skipulögðu
starfi hreyfa þær sig áfram með einhverjum hætti. Það er jákvætt.
En um leið nær meirihluti ungmenna ekki ráðlögðum hreyfivið-
miðum á hverjum degi, að því er fram kemur í meistaraprófsrit-
gerð Örnu Benný Harðardóttur við menntavísindasvið Háskóla
Íslands, frá sumri 2018.
Niðurstaða Örnu var sú að aukið álag, sem stytting fram-
haldsskólans veldur ungmennunum, sé meðal áhrifaþátta fyrir
brottfallinu. Kynjamunur hafi komið skýrt fram í sambandi við
stuðning og hvatningu við íþróttaiðkunina. Stelpur vanti fremur
stuðning og jákvæðara viðmót við íþróttaiðkun sína en stráka.
Þá segir í ritgerðinni að það sé jákvæð þróun að þátttaka
ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi sé að aukast. Brottfallið sé
mest á unglingsárum og er það töluvert. Stelpur heltast frekar
úr lestinni en strákar.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að áhugaleysi sé
stærsti áhættuþátturinn þegar kemur að brottfalli ungmenna úr
skipulögðum íþróttum. Áhugaleysið verður til af mörgum mismun-
andi og stundum samvinnandi þáttum. Þar má helst nefna pressu
og kröfur, æfingaálag, tímaskort, að hafa annað að gera, vini
utan íþróttanna, áhrif foreldra og þjálfara. Aukið álag í námi
vegna styttingu framhaldsskóla hefur einnig áhrif og veldur því
að fleiri hætta að iðka íþróttir.
Í ritgerðinni var notuð eigindleg aðferð við gagnaöflun.
Arna skoðaði þar viðhorf og hugmyndir tíu stelpna og
tíu stráka á aldrinum 15–18 ára á Akureyri um brottfall
ungmenna úr íþróttum. Þátttakendur voru ýmist enn í
skipulagðri íþróttaiðkun eða voru hætt og komu úr
fjölbreyttum íþróttum, einstaklings- og hópíþróttum.
Einnig svöruðu ungmennin bakgrunnsblaði.
Hægt er að lesa alla ritgerðina á:
https://skemman.is/bitstream/1946/31677/1/
Arna_Benny_Hardardottir.pdf
Sjá: Brottfall ungmenna úr íþróttum Hugmyndir og
viðhorf ungra Akureyringa.
Stelpur
halda áfram að hreyfa sig