Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 33
SKINFAXI 33
Embætti landlæknis tekur saman lýðheilsuvísa eftir heilbrigðis-
umdæmum á Íslandi. Það er liður í því að veita yfirsýn yfir lýð-
heilsu í hverju umdæmi fyrir sig í samanburði við landið í heild.
Lýðheilsuvísum er ætlað að auðvelda sveitarfélögum og heil-
brigðisþjónustu að greina stöðuna í sínu umdæmi, finna styrk-
leika og veikleika og skilja þarfir íbúanna þannig að þau geti
unnið saman að því að bæta heilsu og líðan. Það gagnast líka
stjórnendum ungmennafélaga um allt land.
Hvernig er staðan á þínu svæði?
Landið allt
343.400
Höfuðborgarsvæðið
219.681
Suðurnes
24.882
Vesturland
18.167
Vestfirðir
6.042
Norðurland
36.061
Austurland
10.398
Suðurland
28.170
Íbúafjöldi á Íslandi
31. desember 2018.
Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi (8.–10 bekkur).
Landið allt
Höfuðb.svæðið
Suðurnes
Vesturland
Vestfirðir
Norðurland
Austurland
Suðurland
10% 20% 30% 40% 50%0% 60% 70% 80% 90% 100%
Sigríður Lára hjá HSV:
Íþróttaskólinn hefur mikil áhrif á þátttöku
Eftirtektarvert er í lýðheilsuvísum að hlutfallslega flest börn í
8.–10. bekk grunnskóla í skipulögðu íþróttastarfi eru á Vest-
fjörðum. Hlutfallslega fæst eru börnin á Austurlandi og á Vestur-
landi. En hver er skýringin?
„Ég er viss um að Íþróttaskóli HSV á Ísafirði og Héraðssam-
bandsins Hrafna-Flóka hefur mikil áhrif á það hversu góð þátt-
taka barna er í skipulögðu íþróttastarfi á Vestfjörðum. Með
skólanum náum við til margra barna á Vestfjörðum,“ segir Sig-
ríður Lára Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri Héraðssambands
Vestfirðinga (HSV).
Fram kemur í lýðheilsuvísunum að 53,5% barna í þessum
bekkjum tóku samkvæmt upplýsingum frá 2018 þátt í skipu-
lögðu íþróttastarfi. Til samanburðar er landsmeðaltalið 52,1%.
Þetta er hæsta þátttökuhlutfallið á Íslandi.
Sigríður Lára segir nokkra aðra þætti skipta máli. „Það er
mikil nánd í byggðarlögum á Vestfjörðum, fólkið færra en víða
annars staðar og auðvelt að ná til fólks, bæði barna og for-
eldra þeirra. Með Íþróttaskólanum náum við til margra og svo
er kraftmikið barna- og unglingastarf í félögunum. Það skilar
sér í meiri líkum á því að börnin velji sér íþróttagrein sem þau
þekkja.“
Gunnar hjá UÍA:
Unnið markvisst að því að fjölga þátttakendum
Fram kemur í lýðheilsuvísunum að þátttaka barna í 8.–10. bekk
í skipulögðu íþróttastarfi er hlutfallslega með minnsta móti á
Austurlandi. Hlutfallið þar er 44,2% samanborið við 53,5 á
Vestfjörðum þar sem það er hæst.
Gunnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri Ungmenna- og íþrótta-
sambands Austurlands (UÍA), segir helstu skýringuna liggja í því
hvað umdæmið er víðfemt og byggðirnar smáar, það nái frá
Vopnafirði niður til Djúpavogs og fáar greinar í boði á sumum
stöðum. Gjarnan séu það einstaklingar sem bretti upp ermar og
lyfti grettistaki. UÍA hafi á sumrin haldið námskeið um allt svæðið
og mikið líf sé líka á sumrin. Óvíst er hvort sumarhátíðir og ein-
staka viðburðir séu inni í upplýsingum Lýðheilsuvísanna.
„Við höfum unnið mjög markvisst að því að fjölga þátttakend-
um í skipulögðu íþróttastarfi. Það sem máli skiptir er að bjóða
upp á þjónustu sem styður við æfingar. Nú er sem dæmi farið
að aka börnum frá Stöðvarfirði á æfingar á Reyðarfirði. Lið eru
líka sameinuð af fjörðunum til að keppa í knattspyrnu. Nú er
mikið líf er í bæjunum,“ segir hann og ítrekar að á mörgum stöð-
um þurfi aðeins einn eldhuga til að fá fólk til að æfa íþrótta-
greinar. Það hafi gerst í blaki á Seyðisfirði en þar nýtur greinin
mikilla vinsælda hjá yngri iðkendum. Sömu sögu er að segja af
uppgangi körfuboltans á Eskifirði.
„Ég sé ekki betur en að íþróttalífið blómstri á Austurlandi,“
segir Gunnar.