Skinfaxi - 01.01.2019, Side 34
34 SKINFAXI
„Það er gaman að stunda íþróttir. En
hvað er það sem er gaman?“ spyr Benja-
mín Freyr Oddsson, nemandi í íþróttasál-
fræði við Stirling-háskóla í Skotlandi. Hann
vinnur að lokaverkefni sínu við skólann
um þessar mundir þar sem hann skoðar
tengsl barna og íþrótta. Sjónarhorn Benja-
míns er dulítið annað en venja er. Hann
segir marga hafa velt því fyrir sér hver
ástæðan sé fyrir því að ungmenni hætta
að stunda íþróttir. Færri hafi hins vegar
skoðað í þaula hvað valdi því að ung-
menni haldi áfram að stunda íþróttir.
„Þegar ég fór út í námið var ég að
pæla í því hvernig ég gæti komið heim
og hjálpað íþróttafólki til að vinna úr
stressi og kvíða. En svo bankaði sú hugsun
upp á hjá mér að halda áfram að vinna
með börnum. Ég hef gaman af því, er
þokkalega góður í því og hef lengi unnið
með þeim. Innri rödd mín sagði mér að
halda því áfram,“ segir Benjamín. Hann
lagðist yfir bækur og greinar sem fjalla um
ástæður þess að börn hætta að stunda
íþróttir og rýndi í kenningar. Flestir rann-
sóknir af þeim toga virðast gerðar með
megindlegri aðferðafræði og þátttak-
endum sendur spurningalisti sem þeir
fylla út.
Geggjað að vera í íþróttum
Benjamín er frá Hvammstanga og hefur sjálfur æft ýmsar íþróttir, þar á meðal fót-
bolta og körfubolta með Ungmennafélaginu Kormáki, aðildarfélagi Ungmenna-
félags Vestur-Húnvetninga (USVH). Hann er íþróttafræðingur frá Laugarvatni
og þjálfaði þar bæði meistaraflokk kvenna og yngri flokka Laugdæla, auk þess
að hafa þjálfað yngri flokka Kormáks í fótbolta og körfubolta hjá Aftureldingu.
Benjamín hefur leikið með uppeldisfélagi sínu síðustu ár en áður æfði hann
með Þór Akureyri og Val, spilaði með meistaraflokki Laugdæla í körfubolta og
fleira.
„Ég hef sjálfur verið á
miklum þeytingi í íþrótta-
starfi. Ég sótti öll Unglinga-
landsmót UMFÍ eftir því
sem ég gat, bæði sem
iðkandi og síðar sem
þjálfari. Það er svo
skemmtilegt við íþróttir
að þar kynnist maður
mörgu fólki sem er til-
búið til að leggja mikið
á sig fyrir starfið. Mér
finnst það alveg geggjað.“
Ræddi við fjölda ungmenna
Í rannsókn sinni ræddi Benjamín við
sjö börn af báðum kynjum í íþróttum
í tveimur hópviðtalstímum. Auk þess
tók hann viðtöl við hvern og einn
þátttakanda. Í viðtölunum er allt sagt
í trúnaði og ekki hægt að rekja upp-
lýsingarnar til þátttakenda. Að viðtöl-
um loknum mun Benjamín skoða hvort
mynstur sé í svörunum og hvað hægt
sé að tengja saman.
„Þegar ég byrjaði fyrsta hópfund-
inn sögðu börnin ekki mikið. Þá átt-
aði ég mig auðvitað á því að ég var
eins og þau þegar ég var á þessum
aldri. Ég hefði ekki sagt neitt við þá
sem ég hafði aldrei séð áður eða
talað við. Ég gat þess vegna ekki
búist við því að þau myndu tala út
í eitt,“ segir hann og bætir við að
þegar hópurinn hafi hrist sig saman
hafi samræðurnar komist á flug.
Gaman þegar fólk
heldur áfram að stunda íþróttir
Benjamín Freyr Oddsson er í meistara-
námi í íþróttasálfræði í Skotlandi.
Benjamín ætlaði að skoða ástæðu þess
að börn og ungmenni hætta að stunda
íþróttir. Hann breytti hins vegar um
stefnu og veltir nú fyrir sér hvað það sé
sem valdi því að börn vilja halda áfram
í íþróttum.