Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.2019, Page 36

Skinfaxi - 01.01.2019, Page 36
36 SKINFAXI 1. Búið til skemmtilegt blað sem sjálfboðaliðar geta notað til að merkja við hvað þeir vilja gera. Textinn á blaðinu getur verið eitthvað á þessum nótum: „Ég er frábær bakari“ eða „Ég er grillmeistarinn.“ 2. Gott er að nota ýmis tækifæri til að ná til fólks sem getur hugsað sér að vera sjálfboðaliði á viðburðum íþróttafélagsins. Þetta má gera á íþrótta- leikjum, á hátíðarsamkomum og víðar þar sem tækifæri gefst. 3. Fáið fólk til að ræða við aðra og laða aðra í sjálfboðaliðastörf. Best er að fá fólk til þess sem er ekki framarlega í íþróttahreyfingunni eða sem situr í stjórn félagsins. 4. Gefið sjálfboðaliðum boli eða treyjur svo að aðrir sjái greinilega að við- komandi er sjálfboðaliði. Ástæðan fyrir þessu er sú að fólk er tilbúið að taka þátt í verkefnum sem sjálfboðaliðar ef það hefur fyrirmynd eða þekkir einhvern sem er sjálfboðaliði. Sjálfboðaliðar á vegum Genner fengu gula boli sem á stóð: Ég er sjálfboðaliði, hvenær ætlarðu að bætast í hópinn? 5. Sýnið að þið metið starf sjálfboðaliðanna. Það er hægt að gera með ýmsu móti, til dæmis þegar færi gefst á íþróttaleikjum og þakka þeim eða velja sjálfboðaliða ársins. 5 RÁÐ til að fjölga sjálfboðaliðum Á vefsíðu DGI er haft eftir Evu Johannsen, formanni Genner, að það hafi komið sér á óvart að þegar þessum ráðum var fylgt hafi margir boðið fram krafta sína sem sjálfboðaliðar. 224 sjálfboðaliðar unnu í samtals 1.446 klukkustundir á Landsmótinu á Sauðárkróki dagana 12.–15. júlí 2018. Að meðaltali 1,6 klukkustundir á dag Sjálfboðaliðar eru... allir sem starfa í nefndum UMFÍ Sjálfboðaliðastjórar eru... þeir sem fá sjálfboðaliða til starfa í öll þau störf er þarf að sinna á viðburðum. Sjálfboðaliðastjóri... heldur utan um tímafjölda sjálfboðaliða eins og kostur er.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.