Skinfaxi - 01.01.2019, Blaðsíða 36
36 SKINFAXI
1. Búið til skemmtilegt blað sem sjálfboðaliðar geta notað til að merkja
við hvað þeir vilja gera. Textinn á blaðinu getur verið eitthvað á þessum
nótum: „Ég er frábær bakari“ eða „Ég er grillmeistarinn.“
2. Gott er að nota ýmis tækifæri til að ná til fólks sem getur hugsað sér að
vera sjálfboðaliði á viðburðum íþróttafélagsins. Þetta má gera á íþrótta-
leikjum, á hátíðarsamkomum og víðar þar sem tækifæri gefst.
3. Fáið fólk til að ræða við aðra og laða aðra í sjálfboðaliðastörf. Best er
að fá fólk til þess sem er ekki framarlega í íþróttahreyfingunni eða sem
situr í stjórn félagsins.
4. Gefið sjálfboðaliðum boli eða treyjur svo að aðrir sjái greinilega að við-
komandi er sjálfboðaliði. Ástæðan fyrir þessu er sú að fólk er tilbúið að
taka þátt í verkefnum sem sjálfboðaliðar ef það hefur fyrirmynd eða þekkir
einhvern sem er sjálfboðaliði. Sjálfboðaliðar á vegum Genner fengu gula
boli sem á stóð: Ég er sjálfboðaliði, hvenær ætlarðu að bætast í hópinn?
5. Sýnið að þið metið starf sjálfboðaliðanna. Það er hægt að gera með
ýmsu móti, til dæmis þegar færi gefst á íþróttaleikjum og þakka þeim
eða velja sjálfboðaliða ársins.
5
RÁÐ
til að fjölga
sjálfboðaliðum
Á vefsíðu DGI er haft eftir Evu Johannsen, formanni Genner, að það hafi komið sér á óvart að þegar þessum ráðum var
fylgt hafi margir boðið fram krafta sína sem sjálfboðaliðar.
224
sjálfboðaliðar unnu í samtals
1.446
klukkustundir á Landsmótinu á Sauðárkróki
dagana 12.–15. júlí 2018.
Að meðaltali
1,6
klukkustundir á dag
Sjálfboðaliðar eru...
allir sem starfa í nefndum UMFÍ
Sjálfboðaliðastjórar eru...
þeir sem fá sjálfboðaliða til starfa í öll þau störf
er þarf að sinna á viðburðum.
Sjálfboðaliðastjóri...
heldur utan um tímafjölda sjálfboðaliða eins og kostur er.