Skinfaxi - 01.01.2019, Side 37
SKINFAXI 37
Algengara er núorðið að taka myndir á farsíma en með
myndavél. Kosturinn við að taka myndir á farsíma er sá
að auðveldara og fljótlegra er að deila myndunum á
samfélagsmiðlum ungmennafélagsins. Mikilvægt er samt
að hafa í huga, áður en mynd er tekin, að passa upp á
nokkur atriði. Gott myndefni getur nefnilega orðið
ónothæft ef myndatakan er léleg.
Nokkur ráð
við að taka
myndir á
farsíma
Nokkur atriði sem gott
er að hafa í huga:
• Hvað ætlarðu að gera við myndina? Ef myndin er
hugsuð til prentunar í dagblaði eða þú vilt góða
mynd á vefsíðu sem lifir lengi þá er betra að nota
myndavél og hugsa um sjónarhorn sem kemur vel
út á mynd. Upplausnin á myndinni þarf að vera
góð, að minnsta kosti 2 MB og meira. Notaðu
frekar myndavél.
• Passaðu að pússa linsuna á myndavél símans. Það
geturðu gert með skyrtulafi eða þurrum klút.
• Stilltu fókusinn á myndefnið. Fátt er verra en mynd úr
fókus. Nóg er að snerta skjáinn og finna fókusinn.
• Ef þú ætlar að taka mynd á síma fyrir vefsíðu félags-
ins þíns þá er betra að láta símann snúa á hlið. Þetta
fer þó eftir því hvar þú ætlar að setja myndina. Ef
myndin er hugsuð fyrir Facebook, Twitter og Insta-
gram þarf myndin að vera á lengdina. Ef myndin
eða vídeóið er hugsað fyrir Snapchat, Facebook
Stories og Instagram Stories er betra að láta
símann snúa upp og taka mynd á hæðina.
• Sjálfvirku stillingarnar í farsímum eru ágætar.
En oftast er hægt að stilla ljósop og fleira og má
frekar mæla með því.
• Slökktu á flassinu í símanum. Það getur eyðilagt
góðar myndir og gerir augun á myndefninu rauð.
• Taktu ekki myndir af fólki sem stendur við glugga.
Þegar það er gert er hætt við að bakgrunnurinn
verði lýsandi skær og fólkið, sem þú ætlaðir að
taka mynd af, í skugga. Láttu fólkið á myndinni
frekar færa sig að vegg eða fyrir framan hóp
af fólki.