Skinfaxi - 01.01.2019, Page 38
38 SKINFAXI
Sambandsaðilar og aðildarfélög UMFÍ geta nýtt sér viðbragð-
sáætlun Æskulýðsvettvangsins þegar upp koma vandamál af
ýmsum toga. Í viðbragðsáætluninni er að finna verkferla sem
fylgja skal þegar upp koma atvik eða áföll sem kunna að hafa
áhrif á starf félags.
Viðbragðsáætlunin tekur til allra þeirra sem starfa á vegum
Æskulýðsvettvangsins og þeirra félagasamtaka sem mynda
saman Æskulýðsvettvanginn, sem eru Bandalag íslenskra skáta,
KFUM og KFUK á Íslandi, Slysavarnafélagið Landsbjörg og
Ungmennafélag Íslands. Hún nær til aðildarfélaga þeirra sam-
taka sem mynda Æskulýðsvettvanginn, allra iðkenda í íþrótta-
og æskulýðsstarfi þeirra, stjórnenda, yfirmanna, starfsmanna,
sjálfboðaliða og annarra ábyrgðaraðila innan félaganna.
Það eru ýmis atvik sem upp kunna að koma í íþrótta- og/
eða æskulýðsstarfi og bregðast þarf við. Erfitt er að gera þeim
öllum skil en mikilvægt að hafa ákveðnar grunnreglur til að
fylgja.
Verkferlarnir eru einfaldir og eiga við í öllum tilvikum, óháð
því hvaða ábyrgðaraðila og atvik er um að ræða. Dæmi um
atvik sem viðbragðsáætlunin nær til eru agabrot, ávana- og
vímuefnanotkun, einelti, kynferðisbrot, alvarleg veikindi, áföll,
slys og andlát.
Þegar mál, sama af hvaða toga það er, kemur inn á borð
Æskulýðsvettvangsins fer það í þennan feril.
Athugið að ef um grun um kynferðisbrot er að ræða skal
tilkynna það strax til fagráðs Æskulýðsvettvangsins.
Hefur eitthvað gerst?
Hafðu þá samband við
Æskulýðsvettvanginn
Viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins
er hægt að nálgast á slóðinni
www.aev.is.
Hægt er hafa samband með því að
senda tölvupóst á aev@aev.is.
Dæmi úr viðbragðsáætluninni
Kynferðisbrot líðast ekki innan félagasamtaka Æskulýðs-
vettvangsins. Allar tilkynningar um kynferðisbrot skal taka
alvarlega og óheimilt er að afgreiða ætluð kynferðisbrot
innan aðildarfélaga. Með hugtakinu kynferðisbrot er átt
við þá háttsemi sem lýst er sem refsiverðri í XXII. kafla
almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og í barnaverndar-
lögum nr. 80/2002.
Til að tryggja öryggi í samskiptum og draga úr hættu
á tilhæfulausum ásökunum er gott að hafa eftirfarandi
í huga:
• Ábyrgðaraðili og barn undir 18 ára aldri skulu aldrei
vera tvö saman í lokuðu rými, ef hjá því verður komist.
• Koma skal í veg fyrir snertingar sem auðvelt er að
mistúlka (t.d. snertingar á sundbolasvæði).
• Forðast skal óeðlileg vinasambönd ábyrgðaraðila og
barna og ungmenna.