Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.01.2021, Page 12

Skinfaxi - 01.01.2021, Page 12
12 S K I N FA X I „Samþykkt hefur verið að færa þrjá sjóði HSÞ undir einn hatt. Mikilvægt er að úthlutunarreglur séu skýrar og að sjóðsstjórn rökstyðji ákvörðun sína,“ segir framkvæmdastjóri HSÞ. „Ef fáir sækja í sjóði félaga og héraðssam- banda er vel þess virði að breyta sjóðunum. Við vorum með þrjá sjóði sem fáir sóttu í, meðal annars vegna stífra reglna og því safnaðist í þá. Við breyttum þeim í einn sjóð og teljum að þeir nýtist félögunum og félagsmönnum betur þannig,“ segir Gunnhildur Hinriksdóttir, framkvæmdastjóri Héraðssambands Þing- eyinga (HSÞ). Á síðasta þingi HSÞ, undir lok mars sl., var lögð fram tillaga um að sameina afrekssjóð, aksturssjóð og fræðslusjóð HSÞ í einn sjóð. Sjóðir HSÞ hafa verið hálfgerð olnbogabörn innan sambandsins. Ekki hefur verið sótt nægi- lega í þá eða þá að þær umsóknir sem borist hafa hafa ekki fallið nógu vel undir úthlutunar- reglurnar. Sjóðirnir hafa því ekki virkað sem skyldi til að styðja við félög og einstaklinga, starfinu til bóta. Lítill vilji er til þess innan HSÞ að sitja á sjóð- um sem fáir ef nokkur sækir í. Reyndar var lagt til að sjóðirnir yrðu allir felldir niður í núver- andi mynd og þeim skipt milli aðildarfélaga HSÞ sem myndu greiða úr þeim. Tillagan var felld enda hefði það fyrirkomulag gagnast lítið minni félögum og sérgreinafélögum sem bjóða ekki upp á barna- og unglingastarf. „Við vonumst til að þetta verði jákvæð breyting, flæðið verði meira og það styrki starfið. Ég er ánægð með tilraunina. En auð- vitað verður úthlutun flóknari því að við ger- um ráð fyrir fleiri umsóknum en áður,“ segir Gunnhildur. Hún tekur líka fram að engin eigin- leg fyrirmynd hafi verið að þessari sameiningu sjóðanna en mikilvægt sé að horfa til nokk- urra þátta við sjóðina eigi sátt að nást um út- hlutun úr þeim. „Fyrir þingið skoðaði ég hvernig aðrir fara að þessu og tók það besta úr öllum sjóðum. Þar sá ég margt áhugavert. Mikilvægt er að úthlutunarreglur séu skýrar. Í mörgum tilvikum þarf sjóðsstjórn ekki að rökstyðja ákvörðun sína um úthlutun. Það er ekki heppilegt og getur valdið óánægju í röðum umsækjenda. Mun vænlegra til sáttar er að birta rökstuðn- ing fyrir því að þessi fái úthlutað styrk en annar ekki,“ segir Gunnhildur og bætir við að það sé þess virði að endurskoða sjóði félaga enda sé það liður í því að styðja betur við félög og iðkendur. Mikilvægt er að stjórnir félaga séu alltaf opnar fyrir því að endurskoða sjóðina. „Ef við verðum ekki sátt við þetta nýja fyrir- komulag sjóðanna getum við breytt því á næsta þingi,“ segir Gunnhildur hjá HSÞ. Sameinaðir sjóðir nýtist betur Gunnhildur Hinriksdóttir, framkvæmdastjóri Héraðssambands Þingeyinga.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.