Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2021, Blaðsíða 20

Skinfaxi - 01.01.2021, Blaðsíða 20
20 S K I N FA X I S tefnumótun mun setja mark sitt á innra starf UMFÍ fram að sambandsþingi í október nk. Hrönn Pétursdóttir, ráðgjafi í stefnumótun, stýrir stefnumótun UMFÍ. Öllum í ung- mennafélagshreyfingunni er boðið að taka virkan þátt í vinnunni, allt frá grasrótinni, sjálfboðaliðum, starfsfólki aðildarfélaga, meðlimum ungmennaráða, framkvæmdastjórum, stjórnarfólki í hreyfingunni og starfsfólki UMFÍ ásamt fleirum. Stefnan nær til UMFÍ á landsvísu og starfsemi héraðssambanda og grasrótarstarfs félaganna þar sem það hentar. Hrönn fundaði með stjórn og starfsfólki UMFÍ í febrúar og mars um stöðuna, starfsemina og framtíðina. Síðan boðaði hún til funda með sambandsaðilum, ungmennaráði og því næst íþróttahéruðum í hverjum landsfjórðungi. Fyrsti formlegi stóri stefnumótunarfundurinn fór fram á Hótel Geysi í Haukadal laugardaginn 20. mars. Þangað komu sambandsaðilar UMFÍ, stjórn og starfsfólk ásamt hópi af ungu fólki. Heildarþátttakan var afar góð og fólk átti djúpar og góðar samræður um það hvaða þýðingu hreyfingin hefði fyrir hvern og einn þátttakanda, iðkendur, þjálfara og alla sem tengjast ung- mennafélagshreyfingunni með einum eða öðrum hætti. Grasrótin setur mark sitt á stefnu UMFÍ „UMFÍ er ótrúlega sterkt félag sem er að gera marga flotta hluti. Það er mjög flókið, því að aðildarfélögin eru mjög fjölbreytt. Þarna eru stór og stöndug íþróttafélög með stórar skrifstofur og marga iðkendur. En þarna eru líka smærri félög með enga skrifstofu, enga starfsmenn og minni áherslu á íþróttir. Þetta eru verðmæti en um leið áskorun,“ segir Hrönn Pétursdóttir. Í framhaldi af Stefnumóti UMFÍ á Geysi voru haldnir rafrænir landshlutafundir. Niðurstaða fundanna hafði frekari áhrif á stefnumótunina. Hrönn vann úr umræðunni og niðurstöður voru ræddar í stefnumótunarhópi UMFÍ. Stefnt er að öðrum fundum með félögum UMFÍ. UMFÍ vinnur að stefnumótun fyrir ungmenna- félagshreyfinguna næstu árin. Hrönn Péturs- dóttir stýrir vinnunni en ný stefna verður kynnt á sambandsþingi UMFÍ í október. Hrönn segir UMFÍ ótrúlega sterkt en flókið félag.  Febrúar/mars: Fundað með stjórn og starfsfólki um stöðuna, starfsemina og framtíðina.  Mars: Stefnumót með sambandsaðilum þar sem staða starfsins var rædd og þróun starfseminnar.  Apríl: Fjórir rafrænir fundir með sam- bandsaðilum UMFÍ og aðildarfélögum þeirra. Þar voru fyrstu drög að uppfærðri stefnu kynnt þátttakendum. Stjórnendur íþróttahéraða, félaga og deilda tóku virkan þátt í fundunum. Hrönn vann úr umræðun- um og lagði niðurstöðuna fyrir stefnumót- unarhóp UMFÍ sem vinnur að málinu.  Maí/Júní: Önnur umferð af svæðafund- um þar sem þátttakendur vinna tillögur og hugmyndir að þeim verkum og verkefnum sem farið verði í til að framkvæma stefnuna.  Sumar og haust 2021: Búin til aðgerðaáætlun.  Október 2021: Sambandsþing UMFÍ: Lögð fram ný stefna og aðgerðaáætlun.  Eftirfylgni: Stjórn og þjónustumiðstöð UMFÍ fylgja stefnunni eftir næstu árin..

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.