Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.2021, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.01.2021, Blaðsíða 16
16 S K I N FA X I E itt af stærstu verkefnum UMFÍ er starfsemi Ungmennabúða UMFÍ á Laugarvatni. Búðirnar eru fyrir nemendur í 9. bekk grunnskóla sem dvelja þar við alls konar leiki og óformlegt nám frá mánudegi til föstudags. Í Ungmennabúðirnar koma um 2.000 nemendur á hverju skólaári. Markmiðið með dvölinni er að styrkja félagsfærni ungmenna og efla vitund þeirra fyrir umhverfi sínu og samfélagi en einnig að kynnast mikilvægi þess að hafa heilbrigðan lífsstíl að leiðarljósi. Líf og fjör í Ungmennabúðum UMFÍ Utan skólatíma, þegar engir nemendur eru í ungmennabúðunum, hafa hópar tekið húsnæðið á leigu. Möguleikarnir eru miklir til funda- halda, útiveru og ýmiss konar viðburða. Íþróttasamband fatlaðra hefur verið með búðirnar á leigu um árabil og boðið þar upp á sumar- búðir. Þar fyrir utan hafa íþróttafélög leigt aðstöðuna fyrir ýmsa við- burði, sumarnámskeið og hópefli. Sumarið 2021 mun til dæmis fyrir- tækið KVAN bjóða upp á sumarbúðir í húsi Ungmennabúðanna á Laugarvatni. Í lok hverrar dvalar svara bæði nemendur og kennarar því hvað þeim fannst um dvölina í ungmennabúðunum. Starfsfólk hér er frábært! Frábær námskeið sem leyfa öllum að njóta sín. Hópeflið, það var fallegt. Frábær andi og góð stemning. Sundlaugarpartýið, Laugaleikarnir, litlir sigrar hjá nemendum. Hvað farið þið með heim? Þetta segja kennarar: Sterkari tengsl við nemendur og nýjar hugmyndir. Við lærðum að það er hægt að setja mörk, standa við orð sín og láta börn taka afleiðingum. Förum heim reynslunni ríkari, kynntumst krökkunum á nýjan og skemmtilegan hátt. Betri tengsl við kollega. Og við munum nýta leiki meira í kennslu.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.