Skinfaxi - 01.03.2022, Side 12
12 S K I N FA X I
„Ég velti fyrir mér hvort ekki sé best að byrja upp á nýtt. Henda gömlu
lögunum út og búa til löggjöf um vettvang frítímans. Með breytingum
á vægi vinnunnar og rýmri frítíma á komandi árum er ekki úr vegi, fyrst
það er verið að ræða þessi mál, að taka málið lengra og láta lögin ná
yfir víðara svið en einungis æskuna, því allt æskulýðs- og félagsstarf
byggir á tveimur hugtökum sem geta verið leiðarstef í nýrri löggjöf.
Það eru hugtökin sjálfsefling (e. empowerment) og virkni (e. citizen-
ship)“ segir Árni Guðmundsson, aðjúnkt á menntavísindasviði Háskóla
Íslands og sérfræðingur í æskulýðsmálum.
Hann var einn af þátttakendum í vinnustofu með aðilum á vettvangi
æskulýðsmála sem ætlað er að hefja vinnu við breytingar á Æskulýðs-
lögum. Málið er liður í því að Mennta- og barnamálaráðuneytið gaf út
fyrstu stefnu sína um tómstunda- og félagsstarf barna og ungmenna í
lok mars og er það vegvísir til framtíðar um það sem ráðuneytið hyggst
leggja áherslu á til að styðja við félags- og tómstundastarf. Fundurinn
var hugsaður sem innlegg í hugmyndasöfnun í breytingum á lögun-
um sem Æskulýðsráð stýrir. Hlutverk þess er að vera stjórnvöldum til
ráðgjafar í æskulýðsmálum og gera tillögur um áherslur og stefnumót-
un í málaflokknum ásamt mörgu öðru sem tengist honum.
Vill löggjöf fyrir börn, ungmenni og eldri borgara
Árni velti því upp undir lok vinnustofunnar hvort ekki væri kominn tími
til að gera einmitt róttækar breytingar á Æskulýðslögum og tómstunda-
lögum og búa til ein heildstæð lög, sem næðu ekki aðeins yfir æsku-
na heldur öll hin æviskeiðin líka, ekki síst það þriðja og síðasta, sem
er miklu lengra en árin frá barnæsku til unglingsára.
„Þetta voru mjög skemmtilegar umræður og allt í einu kom sú pæl-
ing upp hjá mér að við ættum að nýta tækifærið og setja málaflokkinn
inn í eina sterka heildarlöggjöf,“ segir Árni og bætir við að í gegnum
tíðina hafi verið ráðist í alls konar bútasaum og viðbætur. „Frístunda-
heimilin eru sem dæmi hluti af grunnskólalögum en ættu augljóslega
að vera hluti af frítímalöggjöf. Það eru ofboðsleg verðmæti fólgin í því
að búa vel að æskunni. Frístundastarf eldra fólks hefur að mestu verið
í umsjón heilbrigðisstétta. Þriðja æviskeiðið, eldri árin, er í mun minni
mæli viðfangsefni heilbrigðisstétta en áður var. Við getum ekki nálgast
það skeið alfarið út frá forsendum heilbrigðisstétta. Þetta einmitt hóp-
urinn sem hefur nægan tíma og þarf að fylla árin eftir að vinnuskyldu
lýkur með einhverri meiningu. Þessu verðum við að breyta í stað þess
að grípa til bútasaums og skyndilausna,“ segir Árni og bendir á að
algengt hafi verið í Æskulýðslögum frá 1970 og frá 2007 að sveitar-
Frítími eldra fólks er
miklu meiri en barna
og ungmenna
félög væru meira og minna stikkfrí, hefðu í raun engar lögformlegar
skyldur í þessum mikilvæga málaflokki. Af hálfu ríkisins eru engar
kvaðir, til dæmis til gæðaviðmiða í frístundastarfi með meiru. Lögin
eru með orðalagi eins og „heimilt er“, „stefnt skal að“, „leitast skal
við“, „samkvæmt nánari reglugerð“, sem aldrei er sett o.s.frv. sem
sagt í besta falli einhvers konar viljayfirlýsing.
Frítíminn verður meiri á næstu árum
„Samfélagið er að breytast og vægi vinnunnar mun gera það á næstu
30–50 árum. Frítími mun aukast og vægi hans þar með. Við þurfum
þess vegna að grípa inn í og móta framtíðina. Lagasetning hefur að
mínu mati gengið út á að leysa vanda fortíðar í stað þess að horfa fram
á við og miða löggjöfina við þörf sem augljóslega mun skapast í fram-
tíðinni,“ segir Árni og nefnir sem dæmi breytingar á starfsemi bóka-
safna. Þau séu hægt og bítandi að breytast í félagsmiðstöðvar. Á sama
tíma séu félagsmiðstöðvar ekki nefndar í lögum nema í tengslum við
frítímaþjónustu fatlaðra. Það sé mótsögn við að á sama tíma séu lög
um málefni aldraðra mjög opin og starfsemi frístundaheimila í grunn-
skólalögum.
Nú er gott tækifæri til þess að taka almennilega til í þessum málum.
Heildarlöggjöf er til þess fallin að skila miklu meiri árangri, að mati Árna:
„Við þurfum að tryggja framboð á uppbyggilegu tómstundastarfi fyrir
alla aldurshópa. Það myndi lyfta mannlífinu á annað stig. Virkni í tóm-
stundastarfi á öllum æviskeiðum er ekki bara menntandi í víðtækasta
skilningi þess orðs, heldur mannbætandi og einn mikilvægast grunn-
ur lífsgæða í tilveru hvers einstaklings. Í slíku eru fólgin mikil og raun-
veruleg verðmæti,“ segir Árni.
Á meðal þess sem rætt var
• Mikilvægt er að starfsfólk og sjálfboðaliðar hafi viður-
kennda lágmarksmenntun og reynslu.
• Mikilvægt er að búin sé til nýliðafræðsla sem tekur mið af
fjölbreyttu æskulýðsstarfi óháð því hjá hvaða félaga- og
æskulýðssamtökum viðkomandi er að vinna. Fræðslan væri
unnin af landssamtökum í samstarfi við vettvanginn og væri
viðurkennd hjá æskulýðssamtökum.
• Að ríki og sveitarfélög styðji við æskulýðsstarf.
• Að tryggja jöfn tækifæri fyrir öll börn og ungmenni.
Aðjúnkt við Háskóla Íslands mælir með því
að Æskulýðslögum verði kastað út í hafsauga
og ný heildarlöggjöf búin til fyrir frístunda-
og æskulýðsstarf frá vöggu til grafar.