Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 29
S K I N FA X I 29
ISCA og ráðstefnan
í hnotskurn
• ISCA er skammstöfun fyrir International Sport and Culture
Association. UMFÍ hefur verið aðili að samtökunum í áratug.
Mörg samevrópsk verkefni hafa orðið þar til, þar á meðal er
Hreyfivika UMFÍ.
• Aðildarfélög ISCA eru 287 frá 90 löndum.
• Yfirskriftir ráðstefna ISCA upp á síðkastið hafa verið Moving
People og HealthyLifestyle4All. Áherslan er á aukna hreyf-
ingu almennings og tækifæri sem stjórnvöld geta gripið til
svo að borgarar geti bætt heilbrigði sitt á eigin forsendum.
• Mikil áhersla var á að fjölga tækifærum fólks til að hreyfa sig,
s.s. með leikjum og leiktækjum sem taka lítið pláss og aðferð-
um sem taka stuttan tíma en koma blóðinu á hreyfingu.
• Horft var til leiða í borgarskipulagi og skipulagi húsnæðis
sem hvetja fólk til að hafa ánægju af því að hreyfa sig, hvort
heldur er eitt eða með öðrum.
• Staða flóttamanna fékk mikið rými á ráðstefnunni. Fulltrúar
landa sem eiga landamæri að löndum eins og Úkraínu lýstu
gríðarlegri fjölgun flóttamanna og leiðum sem mögulegar
væru til að hjálpa fólkinu með öllum tiltækum ráðum. Slíkt
væri til þess fallið að bæta líðan og heilsu flóttafólks í nýju
landi og aðstoða nýja íbúa við að aðlagast breyttum
aðstæðum.
Leikum okkur á hættulegum stöðum
Gregor sagði stjórnvöld og borgaryfirvöld verða að hafa það á stefnu-
skrá sinni að bæta hreyfingu borgaranna. Þau gætu gripið til ýmissa
atriða sem gætu hvatt fólk til meiri hreyfingar. Þar á meðal mætti prófa
annað slagið að loka götum og leyfa fólki að leika sér á þeim. Ekki þyrfti
að skipuleggja sérstaka viðburði á götunum, því fólk myndi einfald-
lega fara út á göturnar og njóta lífsins betur.
„Það eina sem börn og foreldrar þeirra þurfa að vita er að göturnar
séu öruggur vettvangur fyrir leiki barna. Þegar það er skýrt munu börnin
hreyfa sig meira en þau gera í dag, hvað þá þau sem eru inni alla daga.
Þetta er ódýr leið og hægt að endurtaka víða,“ sagði Gregor Starc.