Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 35
 S K I N FA X I 35 Íþróttir eru fyrir alla Skautasambandið er fyrsta sérsambandið sem tók íþróttir fatlaðra inn í þjálfaranámið. Þar er kerfi Special Olympics kynnt, sem og einstakl- ingsnálgunin. „Þetta er innleitt af fullum þunga og vonandi koma hin samböndin svo inn líka,“ segir Helga. „Þetta eru engar geimverur, bara börn og ung- menni eins og allir aðrir. Það þarf enginn að vera hræddur við þau. Þau eru alveg jafn yndis- leg og öll önnur börn. Ég held að það sé hræðsla hjá félögum að það kosti allt of mikið að hafa þau hjá sér. Og vonandi verður engin þörf á mínu félagi í framtíðinni, því börnin kom- ast alls staðar inn. Við viljum aðeins að íþróttir fatlaðra verði sýnilegri,“ segir Helga. Háskóli Íslands og Háskólinn í Reykjavík eru með áfanga um sértækar íþróttir. Íþróttakenn- arar framtíðarinnar fá því kennslu í því að allir geta tekið þátt í íþróttum. „Þeir fara á milli félaga og fá að fylgjast með æfingum og það er frábært að taka saman hvað er í boði. Það eru margir svo fastir í því að það sé erfitt að kenna fötluðum krökkum en þetta eru bara krakkar, yndislegir krakkar. Það þarf meiri vitundarvakningu hjá íþrótta- félögum um að þeim ber lagaleg skylda til að taka á móti öllum. Það gleymist og það er svo- lítið gert af því að útiloka þessa krakka. En ég tel að vitundarvakningin sé að byrja og háskólarnir eiga stórt skref í því. Svo er bara spurning hvað allir hinir gera. Við vorum með risa ráðstefnu síðasta vor og ég vona að hún hafi skilað einhverju,“ segir Helga. Fatlaðir og ófatlaðir æfa saman Öspin stefnir á að auglýsa starfið í bæklingum sem dreift verður á heilsugæslustöðvum, sjúkraþjálfunarstofum og þjónustumiðstöðvum. „Við ætlum að gera bæklinginn rafrænan og höfum ráðið til okkar ljósmyndara til að taka myndir í öllum deildum til að nota í bækling- inn. Við viljum sýna myndir með áherslu á gleði í íþróttum, sýna hvað það er gaman að æfa íþróttir,“ segir Helga, en í Öspinni er mikið horft í lífsleikniþáttinn. „Sumir eiga erfitt með samskipti við aðra en með lífsleikniþætt- inum reynum við að fá einhver samskipti í gang og það hefur reynst okkur mjög vel. Þannig viljum við að fólk nái árangri í íþróttum, þegar því líður vel og finnur að það er í öruggu um- hverfi. Það er grunnurinn að árangri. Það gleym- ist oft, því íþróttir eru svo árangursmiðaðar.“ Með tár í augum Hjá Öspinni æfa fatlaðir og ófatlaðir. Helga segir í raun mikilvægt að breyta lögum félags- ins til að komast inn hjá fleirum en Íþróttasam- bandi fatlaðra. Mismunur felist nefnilega í gömlu lögunum. „Í gömlu lögunum stóð að Öspin væri íþróttafélag fyrir einstaklinga með fötlun. Við þurfum að breyta þessu því að Öspin er íþrótta- félag sem sérhæfir sig í þjónustu við einstakl- inga með fötlun og sérþarfir. Öll íþróttafélög eiga að vera opin öllum en það er samt ástæða fyrir því að Öspin er til, því að ekki eru öll íþróttafélög opin öllum. Þessi börn eru ekki endilega velkomin annars staðar,“ segir Helga og bætir við að þótt 90% iðkenda félagsins séu með fötlun séu þar líka ófatlaðir iðkendur. Allir fá sömu einstaklingsmiðuðu þjálfunina. „Okkur langar að opna umræðuna um það að fatlaðir þurfa líka pláss. Íþróttir eiga að vera fyrir alla og við getum gert þetta saman. Það þarf ekki að vera aðskilnaður. Við erum með „unified“ pör sem hafa verið að keppa og ná mjög góðum árangri. Þetta er líka góð- ur grunnur,“ segir Helga og bætir við að áhersla sé lögð á að skapa samfélag iðkenda. „Krakkarnir þekkjast og eflast og við erum alltaf með félagsleg markmið. Það er rosalega gaman að sjá muninn á einstaklingum sem koma til okkar. Sum koma kannski brotin, hafa verið á hliðarlínunni í íþróttum í skólanum og fá ekki að taka þátt þar, eiga bara að sitja og horfa á, og svo eru þau farin að njóta sín á æfingunum hjá okkur. Maður fær bara tár í augun að sjá það. Það skiptir alveg rosalega miklu máli því að svo taka þau þetta með sér út í lífið í samskiptum við aðra og eru ekki jafn rosalega feimin og þau voru þegar þau byrj- uðu,“ segir hún að lokum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.