Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 34
34 S K I N FA X I Helga Kr. Olsen, yfirþjálfari skautadeildar Íþróttafélagsins Aspar. Gleði og kátína skein úr andlitum þátttakenda á jólasýningu Asparinnar í desember. Margt hefur verið að malla í skautagreinum upp á síðkastið. Iðkendum á öllum aldri hefur fjölgað mikið og er svo komið að ekki eru lausir tímar fyrir alla iðkendur. Skautaíþróttin springur út H já Íþróttafélaginu Ösp er ekki mikil fjölgun í skautastarfinu og er lýst eftir nýjum iðkendum. Félagið var stofnað árið 1980 en skautadeild ekki fyrr en árið 2011. „Við erum í pínu vandræðum með að ná einstaklingum til okkar því við erum með sér- hæfða þjónustu fyrir börn og ungmenni með fötlun. Okkur vantar nýliða og bara fleiri iðk- endur yfir höfuð. Sérstaklega þessi litlu kríli. En við erum nú líka að glíma við svolítið öðru- vísi þröskuld þar. Fólk er að bíða eftir greiningu eða einhverju slíku fyrir börnin sín. Greiningin skiptir okkur samt engu máli og er ekki for- senda iðkunar hér. Fólk hefur svolitlar ranghug- myndir um það hverjir mega koma til Aspar- innar og ekki koma. Raunin er að allir mega koma,“ segir Helga. Stefna á skautahlaup Helga er sama sinnis og fleiri viðmælendur og segir skautaíþróttina krefjast mikils svig- rúms. Þó sé ekkert pláss fyrir lausa tíma fyrir skautaíþróttina. „Við æfum í Skautahöllinni í Egilshöll og þar erum við með fjóra ístíma á viku. Við fáum ekki fleiri tíma því það eru ekki fleiri tímar lausir. Það Alls konar iðkendur skauta hjá Öspinni Fréttir bárust af því á dögunum að Skautasam- bandið og Íshokkísambandið hefðu bankað á dyr bæjarstjórnar Árborgar og kannað áhuga á því að reisa skautahöll á Selfossi. Pælingin er Íþróttafélagið Ösp sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga með fötlun og sérþarfir. Helga Olsen segir það misskilning að fólk þurfi að bíða eftir greiningu fyrir börn sín svo þau geti byrjað að stunda íþróttir. tilkomin vegna aukins áhuga á skautaíþrótt- inni og vilja til að fjölga valkostum í íþróttum. vantar fleiri svell en þessi tvö sem eru í Reykja- vík. Það væri til dæmis mjög gaman að æfa krullu því það er allur búnaður til þess hér en það er bara enginn laus ístími. Okkur langar líka að byrja með skautahlaup en enn og aftur, það vantar meiri ístíma og nýja skautahöll. Það er líka erfitt að auglýsa starfið þegar við höfum ekki meiri tíma til að þjálfa. Við erum með mjög hátt þjónustuhlutfall,“ segir Helga og bendir á að í skautaskólanum séu átta börn með 4–5 þjálfara. „Það eru 32 iðkendur hjá okkur, á aldrinum 5–32 ára. Við erum með einstaklingsmiðað nám og það gengur rosalega vel. Við fengum styrk frá Velferðarráðuneytinu til að ráða grafískan hönnuð í lið með okkur og við ætl- um að gera myndrænt æfingaprógramm fyrir iðkendurna. Hann teiknar þá upp myndir af líkamsstöðum í skautaæfingunum, sem eru síðan festar við spjöld með frönskum renni- lás. Þá getum við sýnt iðkendum þær æfingar sem eru gerðar í tímunum. Svo þegar ákveðin æfing er búin er hún flutt yfir í „búið“-kassann og þannig er öll æfingin vel sýnileg. Það hjálp- ar að hafa þetta svona sjónrænt því sumir ná ekki vel munnlegum fyrirmælum. Þetta hentar því mörgum, hvort sem þau eru fimm ára eða fimmtán ára. Fyrirsjáanleiki skiptir nefnilega svo miklu máli, hvort sem maður er með fötl- un eða ekki. Þetta er okkar leið til að sýna afraksturinn af æfingunni og í leiðinni erum við að kenna þeim heitin á æfingunum því það stendur undir myndunum hvað æfing- arnar heita,“ segir Helga. Eigum að spyrja börn hvað þau vilja Nálgunin er sem sagt önnur en hjá öðrum félögum og gengur það afskaplega vel fyrir iðkendahópinn. Iðkendur fá líka persónulega skautabók. Helga segir unnið eftir námsleið Special Olympics, þar sem búið er að brjóta niður allar æfingarnar, og iðkendur safni stjörnum alla æfinguna. „Þú færð stjörnu fyrir að mæta, fyrir að fara inn á ísinn og fyrir að klára. Þetta er hvetjandi kerfi. Við eigum nefnilega ekki að búa til ein- staklinga sem bara hlýða og hafa ekki skoðun á neinu. Við eigum að spyrja börnin hvað þau vilja því annars erum við ekki að efla þau. Við sjáum rosalega mikinn áhuga hjá krökkunum og þetta er það sem íþróttir eiga að snúast um, sjálfsefling,“ segir hún.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.