Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 36

Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 36
36 S K I N FA X I „Það varð algjör sprenging í fjölgun iðkenda hjá okkur í haust,“ segir Sarah Smiley, þjálfari hjá íshokkídeild Skautafélags Akureyrar. Hún á enga skýringu á aukningunni að öðru leyti en því að deildin eigi gott samstarf við grunnskólann og börnum sé ekið þar í frístund. „Akureyrarbær styrkir frístundaakstur og við bjóðum börnum í 2.–4. bekk að æfa strax eftir skóla, eftir klukkan tvö á daginn. Þau eru sótt í skólann. Íshokkígallinn þeirra er geymdur í Skautahöllinni, þau klæða sig í hann þar, fara inn á ísinn og sömu leið til baka eftir æfinguna. Rútan bíður eftir þeim til að skutla þeim aftur upp í skóla. Þau eru síðan komin heim klukkan fjögur á daginn. Þetta er annað árið sem við bjóðum upp á þetta fyrirkomulag og það er orðið mjög vinsælt. Krakkarnir hafa meiri orku og mæta betur á æfingar. Foreldrar eru líka himinlifandi því þeir þurfa ekki að skutla út um allt,” segir Sarah. Í íshokkídeildinni á Akureyri eru um 180 iðk- endur undir 18 ára og svo um 50–60 iðkend- ur yfir 18 ára. Skautahöllin er því löngu sprung- in og ekki er nægur tími fyrir alla á ísnum. „Iðkendum hefur fjölgað stanslaust síðast- liðin 10 ár og í kjölfarið eru eldri flokkarnir okk- ar orðnir miklu stærri en áður. Við höfum því sprengt utan af okkur tímatöfluna. Það er í raun jákvætt en vandamál, því við þurfum meiri ístíma,“ segir Sarah. Íshokkídeildin býður upp á svokallaðar „old boys“-æfingar sem eru fyrir fullorðna leikmenn sem eru hættir og líka „valkyrjuhóp“, sem er fyrir fullorðnar konur sem eru allar vanar að spila. Báðir hóparnir æfa á kvöldin. Sarah segir að þau vanti skárri tímasetningar við æfingar því hóparnir æfi frekar seint á kvöldin, á milli klukkan níu og tíu. Stanslaus fjölgun iðkenda í áratug Krakkarnir hafa meiri orku þegar þau mæta með skólabílnum á æfingar, segir Sarah Smiley hjá Skautafélagi Akureyrar. „Það er mjög skemmtilegt að sjá hversu margir sýna listskautum áhuga og endalaus fjöldi af fólki bætist við og prófar. Við erum mjög ánægð með byrjendastarfið eins og það er núna,“ segir Svala Vigfúsdóttir, formaður listhlaupa- deildar Skautafélags Akureyrar. Félagið hefur glímt við svolítil vandamál upp á síðkastið. Loka þurfti starfseminni vegna framkvæmda um fimm mánaða skeið og dró þá úr fjölgun byrjenda. „Við vorum svolítið smeyk um framhaldið og þróun mála þegar starfið fór af stað aftur. En þetta hefur verið ótrúlega gott,“ segir Svala og bætir við að ný stjórn deildarinnar hafi grip- ið til ýmissa ráða til að auka sýnileika skauta- íþróttarinnar. „Við erum mjög virk á samfélagsmiðlum eins og Instagram og Facebook, auglýstum starfið þar og svo auglýstum við samhliða hokkíinu í Dagskránni svo að þetta var úti um allt. Til við- bótar buðum við upp á fría prufutíma í septem- ber. Margt fólk kom að prófa og margir héldu áfram. Við erum því mjög ánægð,“ segir Svala og bendir á að iðkendur séu nú komnir yfir fimmta tuginn en nær allir í yngri kantinum og Listhlaupadeildin réðst í kynningarátak Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt, segir Svala Vigfúsdóttir hjá listhlaupadeild Skautafélags Akureyrar. „Annar æfingatími er einfaldlega ekki í boði því við þurfum að koma keppnisflokkunum fyrir á nógu margar æfingar. Við erum til í allt, meira að segja æfingasvell á bak við skauta- höllina,“ segir Sarah. Sarah Smiley ásamt ungum iðkendum hjá Skautafélagi Akureyrar. erfiðara sé að höfða til eldri iðkenda. „Við reyndum einu sinni að hafa fullorðins- námskeið til að bjóða eldra fólki að taka þátt í starfinu. Í fría prufutímanum mættu 20 manns og það lofaði rosalega góðu. En svo skráðu sig bara tveir. Það er því miður enginn hópur virkur fyrir fullorðna hjá okkur,“ segir Svala. Skautafélagið var að byrja með skautahlaup, sem er nýjung hjá félaginu. Í skautahlaupi eru notaðir öðruvísi skautar með lengri blöðum. Hlaupið snýst um að skauta hring eftir hring og auka hraðann. Engin stökk eða aðrar tiktúrur eru í skautahlaupi. „Okkur finnst alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt. Þetta var mjög vinsælt fyrir nokkrum ára- tugum, sérstaklega hérna á Akureyri. Og núna er þjálfari búsettur hér sem var tilbúinn til að prófa þetta með okkur og þá bara ákváðum við að steypa okkur í skautahlaup!“ segir Svala að lokum. Keppandi á Reykjavíkurleikunum.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.