Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.2022, Side 28

Skinfaxi - 01.03.2022, Side 28
28 S K I N FA X I „Það hefur orðið alvarleg afturför í lýðheilsu og börnum sem leika sér úti er farið að fækka. Börn sem leika sér úti hreyfa sig 3–5 sinnum meira en þau sem leika sér inni. Útileikir hafa jákvæð áhrif á lýðheilsu og því verða stjórnvöld að fjölga tækifærum barna og ungmenna og fólks almennt til að hreyfa sig,“ segir dr. Gregor Starc, lektor við íþrótta- fræðideild Háskólans í Ljubljana í Slóveníu. Hann var á meðal frummæl- enda á ársþingi evrópsku lýðheilsusamtakanna ISCA í Brussel í lok nóv- ember, þar sem fulltrúar aðildarfélaga ISCA komu saman og ræddu um lýðheilsu og hreyfingu frá ýmsum sjónarhornum. Áherslan á þingi ISCA þetta árið var tvíþætt, annars vegar lýðheilsa í stóra samhenginu og hins vegar flóttamannavandinn í Evrópu í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Ljóst er að vandinn er gríðarlegur og mun áþreifanlegri á meginlandinu, sérstaklega í þeim löndum sem eiga landamæri að Úkraínu. Að sama skapi er um nokkurn veginn samþætt vandamál að ræða, enda horft til þess að þátttaka flóttafólks í íþróttum styðji við inngildingu þess í samfélaginu og bætta lífshætti í nýju landi. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á heilastarfsemi Gregor Starc ávarpaði ráðstefnuna og tók jafnframt þátt í pallborði um bætta lýðheilsu. Hann benti á mikilvægi þess að byrja á grunninum, snemma á lífsleiðinni. Á móti væri hins vegar lítið gert til að hvetja til hreyfingar, sér í lagi í erlendum stórborgum. Staðan væri auðvitað mis- munandi eftir löndum og næsta sorglegt að í sumum löndum væri hreyfing barna ekki á aðalnámskrá og varla íþróttahús í sumum grunn- skólum. Þá væri lítið gert til að hvetja til heilsulæsis barna og ung- menna – og meira að segja fullorðinna líka. Börnin þurfa að leika sér oftar úti á götu „Börn sem hreyfa sig og stunda íþróttir eru á allan hátt heilbrigðari en önnur börn. Börn þurfa að læra um kosti hreyfingar og heilbrigðra hátta. Þetta helst allt í hendur. Börn eiga ekki að sitja klukkustundum saman við borð í kennslustofu. Þau fá meiri þroska í hreyfingu. Þegar þau hreyfa sig styrkist líkaminn og það bætir heilastarfsemina,“ sagði Starc og talaði þar á sömu línu og verkefnið Sýnum karakter, þar sem tvinnað er saman líkamlegri, félagslegri og andlegri heilsu. Hann hvatti jafnframt til útgáfu kennsluefnis og bóka um hreyfingu og heilbrigði með sama hætti og bækur eru gefnar út um matreiðslu og svo til hvað eina. Þetta skrifaðist ekki bara á stjórnvöld heldur líka á foreldra, sem væru farnir að passa of vel upp á öryggi barna sinna. „Börn læra nýja hluti með því að prófa sig áfram. Þau þurfa að fá tæki- færi til að taka áhættu og læra að leika sér. Það þýðir að leiksvæði barna þarf að stækka. Þau þurfa að fara frá heimili sínu og leika sér lengra frá því en áður,“ sagði hann og benti á að fyrir um 40 árum hefðu börn farið langan veg til að leika sér, úti á götu, úti í skógi og víðar. „Hvað fóruð þið langt frá heimili ykkar að leika þegar þið voruð ellefu ára?“ spurði Starc þátttakendur og benti á að í gegnum tíðina hefði leiksvæði barna minnkað mikið. Nú léku þau sér of nálægt heimili sínu. Það hamlaði þeim og kæmi niður á tækifærum þeirra. „Við höfum gert of mikið af því að vefja börn í bómull. Þau þurfa að fara meira út að leika sér og taka áhættu. Annars læra þau aldrei neitt,“ sagði hann og bætti við að bílar og ökumenn hefðu þröngvað börnum af götum borga og þéttbýlisstaða. Lýðheilsa og heilbrigðara líf ævina á enda er í kastljósinu víðar en á Íslandi um þessar mundir. Flóttamannavandinn, íþróttir og fjölbreyttari þátttaka til heilbrigðara lífs voru aðalumræðuefni alþjóðlegu samtakanna ISCA í nóvember.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.