Skinfaxi - 01.03.2022, Blaðsíða 41
S K I N FA X I 41
Gamla myndin: Mót verður til
F
yrsta Unglingalandsmót UMFÍ var
haldið á Dalvík dagana 10.–12. júlí
árið 1992. Árið áður hafði sú hug-
mynd komið upp hjá Ungmenna-
sambandi Eyjafjarðar (UMSE) að
halda landsmót fyrir unglinga innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar. Þessi hugmynd skaut
upp kollinum þegar UMSE sá um Íslands-
meistaramót 14 ára og yngri í frjálsíþróttum
á Akureyri sumarið 1991. Þar varð til sú hug-
mynd að gaman væri að halda stórt mót með
mörgum greinum fyrir krakka. Stjórn UMSE
kannaði áhugann fyrir slíku móti og þurfti ekki
að leita lengi. Félögum og samböndum innan
UMFÍ bauðst að vera með og upp úr því var
farið að tala um Unglingalandsmót UMFÍ.
Upphafsmaður þessarar hugmyndar er Jón
Sævar Þórðarson, en hann var framkvæmda-
stjóri UMSE á þessum tíma.
Strax í upphafi var ákveðið að á mótinu ætti
ekki að einblína á góðan árangur í þeim grein-
um sem í boði voru heldur var skemmtana-
gildið í fyrsta sæti. Í boði skyldi vera þátttaka í
ýmsum íþróttagreinum, kvöldvökur, skemmt-
un og útivist. Lagt var til að mótið yrði þriggja
daga fjölskylduhátíð og haldið þriðja hvert ár.
Á mótinu skyldi vera fjölbreytt skemmtidag-
skrá fyrir alla aldurshópa en keppendur skyldu
vera 16 ára og yngri. Fjöldi keppenda í keppnis-
greinum skipti engu máli og engin stiga-
keppni skyldi vera haldin. Þrír efstu í hverri
grein skyldu þó fá verðlaun. Keppnisgrein-
arnar á mótinu áttu alltaf að vera frjálsíþróttir,
knattspyrna, sund og skák en síðan máttu
mótshaldarar velja aðrar greinar til viðbótar.
Á fyrsta unglingalandsmótinu voru 1.078
keppendur skráðir til leiks og voru mótsgrein-
arnar átta talsins: frjálsíþróttir, knattspyrna,
sund, skák, glíma, golf, hestaíþróttir og borð-
tennis. Þetta var því flott byrjun á viðburði
sem átti eftir að festa sig í hjartarætur marga
manna.
Unglingalandsmótið var sett formlega á
föstudagskvöldinu með skrúðgöngu kepp-
enda inn á leikvanginn sem Hafsteinn Þor-
valdsson stjórnaði. Jóhann Ólafsson, þáver-
andi formaður unglingalandsmótsnefndar,
bauð keppendur og aðra velkomna; Kristján
Þór Júlíusson, þá bæjarstjóri Dalvíkur, hélt
ávarp og Pálmi Gíslason, formaður UMFÍ, setti
mótið við mikinn fögnuð. Á föstudagskvöldinu
spreyttu ungir mótsgestir sig í karókí sem fór
fram í stóru tjaldi og kvöldið eftir var haldið
ball fyrir alla þátttakendur þar sem hljóm-
sveitin 1000 andlit hélt fjörinu uppi. Kepp-
endur og aðrir sem voru viðstaddir mótið
fóru því sáttir og sælir heim eftir vel heppnað
fyrsta Unglingalandsmóti UMFÍ á Dalvík.