Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.2021, Side 10

Muninn - 01.04.2021, Side 10
Elsku menntskælingar Það er magnað hvað við höfum náð að afkasta miklu síðasta árið miðað við aðstæður. En það er engum öðrum að þakka heldur en ykkur, kæru MA-ingar. Covid-19 setti svo sannarlega strik í reikninginn og hafði áhrif á okkur öll yfir allt árið. Vissulega hindraði það margt og er engum óskandi, en þrátt fyrir það þá fórum við okkar eigin leiðir og þið tókuð þátt á þeim viðburðum sem hægt var. Mig langar að nýta tækifærið og þakka ykkur öllum og þakka undirfélögunum og nefndum fyrir skipulagningu viðburða á þessu ári. Dugnaður ykkar og þrautseigjan er ómetanleg og ekki sjálfgefin á svona tímum. Við vitum öll að það býr miklu meiri gleði og miklu meira félagslíf innan veggja MA heldur en hægt var að upplifa í ár. Ég vildi óska þess að hægt hefði verið að bjóða ykkur upp á meira skemmtilegt, eins og söngsal, flippaðar löngu, kvöldvökur, alvöru nýnemamóttöku og ÁRSHÁTÍÐ. Ég vona innilega að þið farið ekki vonsvikin út úr MA eftir þetta skólaár heldur finnið það góða sem var og rennið yfir það sem hefur fengið ykkur til að brosa. 1.bekkur, ég vona að næstu tvö árin ykkar hér verði frábær, jafn frábær og ég upplifði þau. 2.bekkur, ég vona að lokaárið ykkar verði ánægjulegt og þið fáið ykkar skammt af gleðinni og loka árshátíðinni ykkar. 3.bekkur, ég vona að þið labbið sátt í burtu 17. júní og takið með ykkur góðu minningarnar úr MA. Hlakka til að sjá ykkur þá og gangi ykkur alls hins besta. Ég vil þakka Óla, Berglindi, Cristinu, Bjarti, Zakka, Úlfi og Jónu fyrir ómetanlega samstöðu og ánægjulegt samstarf. Við hefðum viljað gera svo miklu meira fyrir ykkur, bráðum kemur betri tíð ❤ — Inspectrix Scholae 2020 - 2021 Ína Soffía ÁVARP INSPECTRIX SCHOLAE 8

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.