Muninn - 01.04.2021, Blaðsíða 28
Einar Sigtryggs
Uppáhaldslag:
Ég var svo heppinn að vera unglingur þegar
íslenska pönk- og nýbylgjan gekk yfir
snemma á níunda áratugnum.
Utangarðsmenn, Fræbbblarnir, Þeyr,
Grýlurnar, Purrkur Pillnikk, Tappi Tíkarrass,
Q4U, Egó og Baraflokkurinn. Þvílíka dæmið og
þetta hitti sko allt í mark hjá mér. Ég var 13
ára fyrirmyndardrengur en margir vinir og
skólafélagar voru á kafi í pönkinu og það
gerði þetta tímabil enn skemmtilegra. Einn
slagari stendur upp úr frá þessum tíma en
það er lagið Rúdolf með Þeysurunum. Þetta
voru þvílíkir gaurar og myndbandið við lagið
var mjög ögrandi og töff. Þetta lag er algjör
negla, hrátt og seiðandi. Tímalaus snilld.
MA-lag:
Vá. Mín MA-ár voru 1984-1988. Á fyrri
tveimur menntaskólaárunum og reyndar á
árunum á undan þá var allt að gerast í
tónlistinni og mikil gróska. Hér er valið afar
erfitt og vont að skilja eftir lög með U2, Simple
Minds og Big Country, sem voru mín
aðalbönd á þessum tíma. Ég var líka að fíla
Duran Duran og íslensku ofurglansarana í
Rickshaw. Á þessum árum þá þurfti maður
að kaupa sér plötur eða taka upp tónlist úr
útvarpinu til að geta hlustað á sína
uppáhaldstónlist og mörg lög heyrði maður
bara örsjaldan.
Lagið sem ég ætla að velja hér er The Sun
Always Shines on T.V. með a-ha. Ég man að
ég var með vini mínum í heimsókn hjá Gunnu
Hauks og Öldu Bjarna á herbergi 227 á gömlu
vistinni þegar ég heyrði þetta lag fyrst. Það
náði mér alveg frá byrjun og ég hef alltaf
haldið upp á norsku frændur mína í a-ha.
Seinna varð svo fyrrnefnd Alda kærastan
mín og enn síðar eiginkona.
Fallegasta lagið:
Þetta var spurning um lagið Betra en nokkuð
annað með Todmobile eða The Power of
Love með Frankie Goes to Hollywood. Ég
verð að velja The Power of Love og þá
lengri útgáfuna, sem er með löngum
angurværum inngangskafla og bæn áður en
sjálfur söngurinn hefst.
Ef menn eru í rómantískum hugleiðingum þá
gæti þetta lag svo sem hentað. Ég hef samt
alltaf tengt textann við það sem gerist þegar
maður hefur lítið barn í höndunum. Ég verð
alltaf meyr þegar ég hlusta á þetta lag. Ástin
er það afl sem mestu skiptir og þetta lag
fjallar í mínum huga um móður- eða
föðurástina, það sannasta og sterkasta af öllu.
Bíðið bara, þið munuð einhvern tímann skilja
hvað ég á við. Betra en nokkuð annað verður
samt örugglega spilað í útförinni minni.
Lag sem ég kann utan að:
Fyrsta platan sem ég keypti mér var
Ísbjarnarblús með Bubba Morthens. Þá var ég
11 ára gamall. Ég hef alla tíð verið mjög hrifin
af textunum hans Bubba og ég var fljótur að
læra marga textana af þessari plötu. Svo
þegar börnin mín fæddust þá fór ég að raula
lögin af plötunni fyrir þau þegar ég var að
koma þeim í draumalandið. Það virkaði
ágætlega en stundum þurfti ég að syngja
dálítið mikið. Þar sem ég á fjögur börn þá er
ég búinn að raula þetta lag oftar en nokkuð
annað. Það er langt frá því að vera eitt af
þekktari lögum Bubba og heitir
Þorskacharleston. Algjör snilld hjá
kónginum.
Kristinn Berg
Uppáhaldslag:
Sorrý, ég get engan veginn valið eitt
uppáhaldslag. Tónlist snýst fyrst og fremst
um tilfinningar fyrir mér og þess vegna er
þetta líka breytilegt. Auðvitað á ég lög sem ég
held meira upp á en önnur en þau eru bara
svo mörg og getur verið misjafnt eftir dögum
og hvernig „„fílingi“ ég er í. Þessi níu lög dýrka
ég af ólíkum ástæðum, hins vegar gæti ég
auðveldlega bætt við níu lögum í viðbót.
Comfortably Numb – Pink Floyd
Child in Time – Deep Purple
Moonlight Shadow – Mike Oldfield
Carry on Wayward Son – Kansas
Don´t Stop Beleivin – Journey
Keep on Rocking in the Free World – Neil
Young
Because the Night – Patty Smith/Bruce
Springsteen, báðar útgáfur stórkostlegar.
Morgunstemning – Edvard Grieg
Bat out of Hell – Meat Loaf
UPPÁHALDS LÖG KENNARA
26