Muninn

Årgang

Muninn - 01.04.2021, Side 62

Muninn - 01.04.2021, Side 62
Viddi varð því miður fyrir þeirri hræðilegu lífsreynslu nýverið að vera rænt og haldið í gíslingu af hræðilegustu mönnum skólans, hinum alræmdu AmMA strákum sem gengið hafa berserksgang um Muninskompu síðustu misseri. Líkt og sést á meðfylgjandi myndum þurfti Viddi að ganga í gegnum traumatíserandi upplifun. Umtöluð beinagrind hefur lengi vel verið bindindismaður sem þjáist af lamandi vatnshræðslu og var hann því þvingaður til þess að horfast í augu við ótta sína í þvinguðu umhverfi. Þegar í ljós kom að Vidda hafi verið rænt varð ritstjórn Munins vægast sagt brugðið. Ljóst var að við gátum ekki horft upp á slíkan atburð eiga sér stað og var því ákveðið endurheimt á Vidda, og það strax. Viðar, betur þekktur sem Viddi Voodoo hefur lengi verið þekktur sem lukkudýr Munins. BMI stuðullinn hans er hættulega lágur en bætir upp fyrir það með góðri nærveru á fundum og andlegum stuðning. Viddi er mikilvægur fyrir alla vinnu Munins og án hans væri hún einskis virði. Við fengum nafnlausa ábendingu frá okkar uppljóstrara um að Vidda mátti finna á Kurdo Kebab í miðbæ Akureyrar. Augljóslega gengum við í málið og fór markaðsstýran okkar, Katla Tryggvadóttir í dulbúnum klæðum inn á staðinn, hljóp óséð framhjá ræningjunum og endurheimti Vidda Voodoo. Úr hófst æsispennandi eltingaleikur sem endaði á afskiptum lögreglu. Viddi fékk þó frelsið sem hann þráði og komst aftur heim til fjölskyldu sinnar, Munins. LÍFSRAUNIR VIDDA VOODOO AÐDRAGANDI ENDURHEIMT 60

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.