Mosfellingur - 06.04.2023, Blaðsíða 18

Mosfellingur - 06.04.2023, Blaðsíða 18
Listasalur Mosfellsbæjar Litlar lindir og skógarbað - Bókasafn og Listasalur Mosfellsbæjar18 Í loftinu má greina skógarangan og fugla- söngur ómar á sýningu Rósu Traustadóttur, Áhrifavaldur = Shinrin Yoku sem opnaði í Listasal Mosfellsbæjar 18. mars. Á sýning- unni gefur að líta vatnslitaverk sem bera þess merki að skógurinn er áhrifavaldur í sköpun Rósu. Laugardagurinn 15. apríl er lokadagur sýningarinnar og er boðið upp á listamannaspjall kl. 14-16 þann dag. Í sýningunni Litlar lindir sem opnar í Listasal Mosfellsbæjar 22. apríl rann- saka myndlistakonurnar Berglind Erna Tryggvadóttir og Geirþrúður Einarsdóttir sögu Mosfellsbæjar. Myndlistakonurnar tengja eigin sögu saman við sögu bæjarins, umhverfi og landslag, náttúruleg fyrirbrigði og minningar sem fléttast uppvexti seint á síðustu öld. Berglind Erna hefur unnið mikið með gjörninga, innsetningar, fundna hluti og ljósmyndun þar sem hún tekst m.a. á við mannleg samskipti, tilfinningalíf og minn- ingar, á meðan Geirþrúður hefur unnið meira með hefðbundnari form í listsköpun sinni og undanfarið hefur hún einbeitt sér að málverkinu. Í þeim verkum mótar fyrir formi landslags á hör og bómullarstriga sem skapa þrívíða mynd. Öll velkomin á opnun kl. 14-16 laugar- daginn 22. apríl. Áttu fræ sem þú ætlar ekki að nota? Bóka- safn Mosfellsbæjar er að safna í fræsafn. Tekið er á móti kryddjurta-, matjurta- og sumarblómafræjum í afgreiðslu safnsins. Athugið að merkja fræin með heiti á íslensku, ensku eða latínu. Þegar allt er til reiðu verður fræsafnið opnað með pompi og pragt, og allir geta prófað sig áfram í ræktun. Bókasafn Mosfellsbæjar Til eru fræ Blómleg vika í Bókasafni Mosfellsbæjar 17.-21. apríl Vorskreytingar 17. apríl 16:30 Valgerður Jóndís Guðjónsdóttir blómahönnuður sýnir réttu handtökin við gerð fallegra vorskreytinga. Fjölæringar 18. apríl 16:30 Embla Heiðmarsdóttir, umhverf- isskipulagsfræðingur, fjallar um fjölæringa í heimilisgörðum. Vorverkin í garðinum 21. apríl 16:30 Auður Ingibjörg Ottesen, ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn, fjallar um vorverkin í garðinum. Plöntuskiptimarkaður 17.-22. apríl Plöntuskiptimarkaður hjá bókasafninu. Öllum ræktendum velkomið að skipt- ast á plöntum og græðlingum. Kjörið tækifæri til að deila með öðrum.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.