Mosfellingur - 06.04.2023, Blaðsíða 32

Mosfellingur - 06.04.2023, Blaðsíða 32
 - Íþróttir32 Fit Pilates Súperform 24. APRÍL 18. APRÍL og yfir 50 opnir tímar á viku Skráning og nánari upplýsingar á worldclass.is Mosfellsbær Mosfellska hljómsveitin KALEO mun aug- lýsa áfram framan á treyjum meistaraflokks karla í fótbolta hjá Aftureldingu áfram næstu tvö árin. Það var fyrir keppnistímabilið 2021 sem þetta sögulega samstarf hófst en ekki er vitað til þess að heimsfræg hljómsveit hafi áður auglýst framan á treyjum hjá íslensku félagi. Strákarnir í KALEO hafa mikla tengingu við Aftureldingu því Jökull Júlíusson söngv- ari, Davíð Antonsson trommari og Daníel Kristjánsson bassaleikari æfðu allir í yngri flokkum Aftureldingar á sínum tíma. Jökull æfði með Aftureldingu upp í 3. flokk áður en tónlistin tók stærri sess í lífi hans. Jökull skrifaði undir nýjan samning fyrir hönd KALEO á glæsilegu 400 manna steik- arkvöldi meistaraflokks karla í íþróttahús- inu að Varmá í mars. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt samstarf. Við erum heiðraðir og stoltir af þessu. Við vonumst til að gera þetta áfram eins lengi og við getum,” sagði Jökull eftir undirskrift. Sögulegt samstarf • Undirritað á 400 manna steikarkvöldi Hljómsveitin KALEO áfram framan á keppnistreyjunum MHG verslun keypti áritaðan gítar á uppboði á herrakvöldinu og styrkti myndarlega við bakið á strákunum fyrir komandi keppnistímabil en stefnan er tekin á sæti í úrvalsdeild áður en langt um líður. Gísli Elvar Halldórsson formaður meistaraflokksráðs karla, Jökull Júlíusson söngvari KALEO og Magnús Már þjálfari Aftureldingar við undirritun áframhaldandi styrktarsamnings. Fyrir framan má sjá glænýja treyjuliðsins sem var afhjúpuð á fjölmennu Steikarkvöldi í íþróttahúsinu að Varmá. M yn di r/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.