Mosfellingur - 11.05.2023, Page 4

Mosfellingur - 11.05.2023, Page 4
www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið HelgiHald næstu vikna - Bæjarblaðið í 20 ár4 Viktoría Unnur nýr skólastjóri Krikaskóla Viktoría Unnur Viktorsdóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra Krikaskóla frá og með 1. júní. Alls sóttu 11 einstaklingar um starfið og var Viktoría Unnur metin hæfust. Hún er með B.Ed. gráðu frá KHÍ, með áherslu á kennslu yngri barna, með diplómanám á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá Endur- menntun Háskóla Íslands og er að ljúka meistaragráðu í stjórnun og forystu í lærdómssamfé­lagi frá HA. Viktoría Unnur hefur starfað sem grunnskólakennari í Norðlingaskóla og verið verkefnastjóri og tengiliður við Háskóla Íslands í samevrópsku verkefni sem stuðlar að seiglu og þrautseigju hjá nemendum. Þá hefur hún reynslu af starfi sem deildarstjóri í leikskóla. sunnudagur 14. maí Kl. 11: Blessunarguðsþjónusta í Lága- fellskirkju fyrir skírnarbörn vetrarins. Stundin verður með krílasálmasniði í umsjá Guðlaugar Helgu og Áslaugar Helgu djákna. sunnudagur 21. maí Kl. 11: Kveðjumessa sr. Ragnheiðar Jónsdóttur. Veglegt messukaffi í safnaðarheimilinu, Þverholti 3 í boði sóknarnefndar eftir messuna. Kl. 11: Útvarpsmessa frá Lágafellskirkju sem tekin var upp vikunni áður. Útvarp- að á Rás 1. sunnudagur 28. maí Fermingarguðsþjónustur kl. 10:30 og 13:30 í Lágafellskirkju. 28 ungmenni fermd í tveim athöfnum. sunnudagur 4. júní Kl. 20: Guðsþjónusta í Lágafellskirkju. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir guðfræðingur leiðir stundina. Heilunarguðsþjónusta Fimmtudaginn 18. maí kl. 20 verður heilunarguðsþjónusta í Lágafellskirkju. Umsjón: sr. Arndís, sr. Henning Emil, Vigdís og hópur græðara. kyrrðardagar í Mosfellskirkju Verða laugardagana 20. og 27. maí. Á þessum laugardögum verður dagskrá frá 9:00 til 11:00 í og við kirkjuna. Upplýsingar og skráning á lagafells- kirkja@lagafellskirkja.is. sumarnámskeið lágafellssóknar (sjá auglýsingu) Upplýsingar og skráning í fullum gangi á heimasíðunni okkar. Lofum stuði og ævintýrum í sumar! Rafræn fermingarskráning fyrir 2024 Upplýsingar og skráning á heimasíð- unni okkar, www.lagafellskirkja.is Íþrótta- og tómstundanefnd veitir styrki í formi launa yfir sumartímann • 20 umsóknir efnileg ungmenni fá styrk Á dögunum veitti íþrótta- og tómstunda- nefnd Mosfellsbæjar styrki til ungra og efnilegra ungmenna. Styrkirnir eru í formi launa yfir sum- artímann og eru greiddir í samræmi við önnur sumarstörf hjá Mosfellsbæ. Markmiðið er að gefa einstaklingum sem skara framúr færi á að stunda sína list, íþrótt eða tómstund yfir sumartímann. Við valið er stuðst við reglur sem byggja á vilja Mosfellsbæjar til að koma til móts við ungmenni sem vegna listar, íþróttar eða tómstundar sinnar eiga erfitt með að vinna launuð störf að hluta til eða að öllu leyti yfir sumartímann. Í ár bárust 20 umsóknir. Allir umsókn- araðilar eru sannarlega vel að styrknum komnir og íþrótta- og tómstundanefnd þakkar öllum aðilum fyrir sínar umsóknir. Styrk­þeg­ar sum­arsins eru sjö: Eydís Ósk Sævarsdóttir, hest­ar/pí­anó Heiða María Hannesdóttir, mynd­list­ Lilja Sól Helgadóttir, t­ónlist­/t­ónsköpun Logi Geirsson, brasilí­skt­ jiu jit­su Sara Kristinsdóttir, golf Sigurjón Bragi Atlason, hand­knat­t­leikur Sævar Atli Hugason, knat­t­spyrna styrkþegar ásamt nefndarfólki Mikil eftirspurn er eftir lóðum við Úugötu í Mosfellsbæ en alls bárust 98 tilboð í lóðir fjögurra fjölbýlishúsa og sjö lóðir fyrir nokkurra eininga raðhús. Við Úugötu er skipulögð byggð um 150 íbúða sem verður fjölbreytt og blönduð í hlíð á móti suðri. Áformað er að síðari úthlutun lóða á svæðinu muni eiga sé­r stað næstkomandi september. Um er að ræða þann hluta hverfis sem einkennist af sé­rbýlishúsaeign, þá að mestu einbýl- is- og parhúsalóðir. Lóðirnar eru ofar í suðurhlíðum Helgafells og njóta þannig sólar frá morgni til kvölds og útsýnis yfir Mosfellsbæ. Ánægjulegt að sjá mikla þátttöku Bæjarráð fer með úthlutun lóða að lok- inni yfirferð allra tilboða. Hverri lóð verður úthlutað til þess aðila sem gerir hæst tilboð í viðkomandi lóð, enda uppfylli tilboð við- komandi aðila skilyrði úthlutunarskilmála, þar á meðal um hæfi tilboðsgjafa. „Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu mikil þátttaka varð í útboðinu á lóðum við Úugötu í hlíðum Helgafells. Eftirspurnin endurspeglar annars vegar vinsældir sveit- arfé­lagsins til búsetu og hins vegar stað- setningu lóðanna sem eru í suðurhlíðum Helgafellslandsins. Í haust fer svo síðari hluti úthlutunar lóða við Úugötu fram en í þeim hluta verður meira sé­rbýli í boði,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar. Úugata er hluti af nýlegu og einkar að- laðandi hverfi Helgafells og er gatan nefnd eftir kvenpersónu úr bókum Halldórs Lax- ness, líkt og aðrar götur í hverfinu. Mosfellsbær vígði síðasta hluta nýs grunnskóla Helgafells árið 2021 og vinnur nú að byggingu íþróttasalar og nýs leikskóla fyrir hverfið. Ráðin framkvæmda­ stjóri lækninga Árdís Björk Ármannsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi. Árdís útskrifaðist sem læknir frá Háskóla Íslands árið 2008. Að auki hefur hún sé­rfræðileyfi í endurhæfingar- lækningum. Hún hefur undanfarin ár verið yfir- læknir og sinnt stjórnun við Södra Älvsborgs Sjukhus í Borås í Svíþjóð. Árdís segir framkvæmda- stjórastöðuna á Reykjalundi vera mjög spennandi og lítur jafnframt á Reykjalund sem frábæran vinnustað með mikla möguleika. Hún hefur brennandi áhuga á endurhæfingu og sé­r gríðarleg tækifæri í að fá að taka þátt í að móta og þróa endur- hæfingu á Íslandi til framtíðar. Árdís kemur að fullu til starfa síðsumars en mun þó hefja störf að hluta í júní. Stefán Yngvason, núverandi framkvæmdastjóri lækninga, hefur sagt upp störfum að eigin ósk en mun gegna starfinu fram á sumar þar til Árdís tekur við keflinu. 98 tilboð bárust • 4 fjölbýlishús og 7 raðhús • Síðari úthlutun 5. áfanga áætluð í haust mikil eftirspurn eftir lóðum við Úugötu í Helgafellshverfi félagsmenn BsrB samþykkja verkfall Í Mosfellsbæ samþykktu 97% • Gæti byrjað að hafa áhrif í skólum í næstu viku Meira en níutíu prósent fé­lagsmanna BSRB hafa samþykkt að hefja verkfall. Um er að ræða starfsmenn í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum Kópavogs, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness. Í Mosfellsbæ samþykktu um 500 fé­lags- menn, 96,83%, verkfallsboðun. Þá munu verkfallsaðgerðir sveitarfé­laga hefjast 15. og 16. maí en aðgerðir geta náð víðar fari atkvæðagreiðsla svo. „Fé­lagsfólk okkar virðist hafa verið löngu tilbúið í verkföll, fólk ætlar ekki að láta þetta misré­tti yfir sig ganga ofan á allt og er tilbúið til að leggja niður störf til að knýja fram ré­ttláta niðurstöðu,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. „Sveitarfé­lögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sé­r og koma til móts við starfsfólk sitt en hingað til hefur samningsviljinn verið enginn,“ sagði Sonja. Ríkissáttasemjari hefur boðað samn- inganefndir BSRB og Sambands íslenskra sveitarfé­laga á fund á föstudaginn kl. 13.

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.