Mosfellingur - 11.05.2023, Síða 22

Mosfellingur - 11.05.2023, Síða 22
 - Fréttir úr bæjarlífinu22 Gróðurhúsið á efstu hæð Helgafellsskóla var tekið í notkun á þessu skólaári. Það hefur sprungið út nú á vormánuðum við mikla ánægju nemenda og starfsfólks. Nemendur taka þátt í öllum þáttum ræktunarstarfsins; Sá, dreifplanta, um- potta, vökva og allt mögulegt. Nemendur hafa farið heim með salat, kryddjurtir og sumarblóm í endurnýttum plastumbúð- um að heiman. Þeir rækta einnig salat og kryddjurtir sem þeir hafa aðgang að í mötuneyti skólans allan skóladaginn. Þá hafa nemendur í smíði tekið þátt í að hanna og smíða bekki, borð og vermireiti fyrir gróðurhúsið. Þessa vikuna er góðgerðarvika í Helga- fellsskóla og verður opið hús frá hádegi föstudaginn 12. maí. Þar munu nemendur selja afrakstur ræktunarinnar, opna kaffihús og margt fleira til styrktar fræðslunefnd fatlaðra hjá Hestamannafélaginu Herði og Reykjadal, sumarbúða Styrktarfélags lamaðra og fatl- aðra. „Við hvetjum alla til að koma og kynna sér verkefni góðgerðarvikunnar í Helga- fellsskóla og leggja góðu málefni lið í leiðinni,“ segir Margrét Lára Eðvarðsdótt- ir, garðyrkjufræðingur og smíðakennari Helgafellsskóla. Góðgerðarvika í Helgafellsskóla • Opið hús á föstudag Gróðurhús skólans að springa út Bílamálari óskast Fimm stjörnu málningar- og réttingaverkstæði vantar bílamálara til starfa. Faglærðan aðila og íslenska skilyrði. Verkstæði með gæðakerfi og hátt þjónustustig. Upplýsingar veitir Gunnlaugur Jónsson í síma 697-7685. R É T T I N G AV E R K S TÆ Ð I Jóns B. ehf Flugumýri 2, Mosfellsbæ www.jonb.is Nýr ærslabelgur á vestursvæðinu Nýr ærslabelgur hefur litið dagsins ljós í Höfðahverfinu. Þetta er þriðji ærslabelgurinn sem settur hefur verið upp í Mosó en fyrir eru þeir á Stekkjarflöt og í Ævintýragarði. Ljóst er að krakkarnir í hverfinu eru hoppandi kátir með þessa nýjung en ærslabelgurinn er staðsettur á milli Rituhöfða og Svöluhöfða. hoppað í höfðahverfinu Næsta blað kemur út: 8. júNí Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudaginn 5. júní. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.