Mosfellingur - 11.05.2023, Síða 38

Mosfellingur - 11.05.2023, Síða 38
 - Bæjarblað í 20 ár38 Mosfellingurinn Lilja Sól Helgadóttir er að taka þátt í sex manna úrslitum í samkeppni SS Pylsur/Skúrsins á Vísir.is Þar spilar hún útsetningu sína á SS pylsu auglýsingastefinu í flutningi Stórsveitar Menntaskóla í tónlist sem samanstendur af 13 blásturshljóðfærum auk rythmasveitar. Í lokaútgáfunni sér Kjalar Martinsson Koll- mar, Idol stjarnan og þátttakandi í Söngva- keppni Sjónvarpsins, um sönginn. Mjólkin komin út á Spotify Lilja Sól er einnig að taka þátt í keppn- inni með sitt fyrsta frumsamda lag, Mjólkin, sem kom út á Spotify á dögunum. Textinn fjallar um hversu góð mjólkin er fyrir okkur ... alveg út í það að „við þurfum ei lengur blóð“. Lagið er raftónlist með mörgum lögum af seiðandi söng hennar og saxófónspili inn- blásnu af jazz spuna. Lilja Sól samdi lagið, útsetti, spilaði á öll hljóðfæri og söng. Textinn er eftir Elías Steinarsson. Í Skólahreysti og skólahljómsveit Lilja Sól er nemandi á öðru ári í Mennta- skóla í tónlist en þar spilar hún bæði á klar- inett og alto saxófón. Hún lauk námi í Lága- fellsskóla 2021 og tók þátt í Skólahreysti fyrir hönd skólans bæði í 9. og 10. bekk. Lilja Sól hefur spilað með Skólahljómsveit Mosfellsbæjar frá 2015. Hægt er að kjósa bæði lögin frá Lilju Sól á vef Vísis undir „Lífið“ eða kíkja á Instagram @LiljaSolH og finna beina slóð á kosninga- síðuna. Lilja Sól komin í 6 manna úrslit • 17 ára saxófónleikari Endurgerir nýja útgáfu af SS pylsu-laginu blásið til sóknar

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.