Mosfellingur - 11.05.2023, Qupperneq 44
Í eldhúsinu
Hildur og Hjölli skora á Ásdísi og Úlla að deila með okkur næstu uppskrift í Mosfellingi
Fljótlega pítsan með indversku ívafi
hjá hildi og hjölla
- Heyrst hefur...44
heyrst hefur...
...að búið sé að opna Serrano og
kaffihúsið Gloríu í Bjarkarholtinu.
...að Hanna mannauðsstjóri Mosfells-
bæjar sé hætt störfum.
...að handboltaundrið Þorsteinn Leó
hafi spilað sinn fyrsta A-landsliðsleik
á dögunum.
...að það sé kominn nýr ærslabelgur
í Höfðahverfi.
...að tæplega 100 umsóknir hafi borist
í nýjar lóðir við Úugötu í Helgafells-
hverfi.
...að búið sé að loka Hlöllabátum
í Bankanum.
...að Hrafnhildur Svendsen hafi
orðið sextug á dögunum.
...að mosfellska hljómsveitin Gildran
ætli að koma saman á ný í Hlégarði í
október.
...að Steindi verði með pubquiz í
Bankanum á föstudagskvöldið og dj
Geiri Slææ þeyti skífum fram á nótt.
...að Langi Seli og Skuggarnir séu
meðal þeirra sem munu koma fram
á 17. júní dagskránni við Hlégarð í
sumar.
...að Blær sé byrjaður að spila aftur
með Aftureldingu eftir ótrúlega
endurheimt eftir slæm meiðsli fyrir
tæpum þremur vikum.
...að 270 peysurnar sem allir eru að
tala um fáist nú í afgreiðslunni í
íþróttahúsinu að Varmá.
...að verið sé að opna pílusal á Ásláki.
...að fyrsti heimaleikur sumarsins
í fótboltanum verði á Framvelli í
Úlfarsárdal á föstudag en verið er að
endurnýja gervigrasið að Varmá.
...að myndlistarsýning eldri borgara
standi nú yfir í anddyri Lágafells-
laugar.
...að Rúnar og Bylgja hafi fagnað tvö-
földu fimmtugsafmæli um helgina.
...að kveðjumessa sr. Ragnheiðar verði
haldin í Lágafellskirkju sunnudaginn
21. maí.
...að nýju KALEO treyjurnar verði til
sölu á fyrsta heimaleik sumarsins í
fótboltanum.
...að Stuðmaðurinn Valgeir Guðjóns-
son mæti með gítarinn í Hlégarð 8.
júní þar sem hann segir sögur og
syngur smellina sína.
...að Mugison sé að undirbúa útitón-
leika í Álafosskvos í byrjun sumars.
...að þriðji leikur Aftureldingar við
Hauka í handboltanum fari fram í
kvöld að Varmá. Vinna þarf þrjá leiki
til að komast í úrslit.
...að KB þrautin fari fram í fjórða sinn
laugardaginn 20. maí en um er að
ræða skemmtilegt þrautahlaup í
umhverfi Mosfellsbæjar.
...að 4. flokkur Aftureldingar verði
með fótboltamaraþon í Fellinu 18.
maí og sé að safna áheitum.
...að Palla Open styrktargolfmótið
fari fram á Hlíðavelli laugardaginn
10. júní.
mosfellingur@mosfellingur.is
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Leó Máni fæddist þann 3. apríl,
hann var 3460 gr og 51 cm.
Foreldrar hans eru Ísak Máni
Viðarsson og Kamilla María
Sveinsdóttir. Leó Máni er
þeirra fyrsta barn og var hann
skírður þann 6. maí.
Hildur Pétursdóttir og Hjörleifur
Jónsson á Ökrum deila með
okkur uppskrift að þessu sinni. Á
boðstólum er fljótleg pítsa sem
einfalt er að útbúa.
hráefni
• 1 stk Stonefire naan brauð
(fæst a.m.k. í Bónus, kælinum)
• Mango chutney
• Afgangs kjöt, t.d. kjúklingur,
lamb eða naut
• Rifinn ostur
• Indverskt krydd
t.d. Garam Masala
• Ferskt grænmeti
• Uppáhalds kalda sósan
Aðferð
Setjið mango chutney á brauðið, skerið kjötið
í þunnar sneiðar og raðið á brauðið, kryddið
létt yfir með garam masala eða öðru sem
ykkur langar. Stráið osti yfir og bakið eftir
leiðbeiningum ca. 5 mínútur á 180°C.
Stráið grænmeti yfir heita pítsuna, ég nota
yfirleitt rúkóla, papriku, gúrku og rauðlauk. Að
lokum set ég mínar uppáhalds sósur sem eru
gráðostasósa og japanskt chili majó.
Verði ykkur að góðu!
Nú má
sumarið
koma
Nýliðin vika hefur verið stútfull af
skemmtilegri vinnu hjá mér; lokapróf
í háskólanum, undirbúningur fyrir
Vinnuskóla Mosfellsbæjar, Samfest-
ingurinn og að fá að fylgjast með
unglingunum okkar vinna að því að
klára skólaárið sitt.
Eins og glöggir taka eftir samanstóð
vikan mín að mestu af starfi með
unglingum. Það er svo gefandi að
vinna með unglingum, að fá að fylgj-
ast með þeim þroskast, læra, misstíga
sig og rísa aftur upp. Það geta það
nefnilega allir og eru unglingar hvað
mest móttækilegir fyrir því að læra og
rísa aftur upp. Það er hlutverk okkar
sem eldri erum að leiðbeina og efla.
Við starfsmenn félagsmiðstöðvar-
innar Bólsins fórum með 120 ungl-
inga á Samfestinginn síðustu helgi,
það er viðburður þar sem nokkur
þúsund unglingar koma saman að
skemmta sér, kynnast hvert öðru og
hafa gaman. Það er svo frábært að fá
að vinna með þeim og fara með þeim
á slíka viðburði, sjá þau með eigin
augum skemmta sér konunglega og
vera sjálfum sér og öðrum til sóma.
Nú fer sumarið að byrja og margir
komnir í sumargírinn, skólinn hjá
okkur sjálfum eða börnunum okkar
alveg að klárast og það glittir annað
slagið í gulu vinkonu okkar. Það er
alltaf sárt að horfa á eftir 10. bekkjar
unglingum fara frá okkur en á sama
tíma gleðilegt að sjá hvaða leið þau
velja sér og hvernig þau tækla hin
ýmsu verkefni lífsins.
Vinnuskóli Mosfellsbæjar hefur
göngu sína í næsta mánuði þar sem
unglingar bæjarins vinna að því að
halda bænum hreinum og fínum.
Mig langar að biðja alla í bænum
um að taka höndum saman og vera
dugleg að hrósa og hvetja unglingana
okkar áfram í sumar. Það er svo miklu
skemmtilegra að vinna þegar verið er
að hvetja mann áfram og hrósa heldur
en að einungis heyra af því þegar
hlutirnir fara ekki alveg eins og við
viljum. Það eru allir að gera sitt besta.
EMMA ÍREN
j a k o s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r
Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
aftureldingar-
vörurnar
fást hjá okkur