Mosfellingur - 22.08.2023, Síða 12
Frístundaávísunin
hækkar í 57.000 kr.
Þann 15. ágúst hófst nýtt tímabil
frístundaávísunar í Mosfellsbæ.
Ávísunin gildir í eitt skólaár í senn,
frá 15. ágúst ár hvert til 31. maí,
fyrir þau börn sem verða 5 ára og
18 ára á árinu.
Markmið
þessarar nið-
urgreiðslu er
að hvetja börn
og unglinga
til að finna
sér frístund
sem hentar
hverjum og
einum.
Fyrir fyrsta barn, 6–18 ára, er
upphæðin kr. 57.000, var áður kr.
52.000. Ávísunin hækkar fyrir þriðja,
fjórða og fimmta barn o.s.frv. Þetta á
við um fjölskyldur sem skráðar eru
með sama lögheimili og fjölskyld-
unúmer hjá foreldri. Hægt er að
ráðstafa styrknum í gegnum flest
skráningakerfi frístundafélaga.
- Fréttir úr bæjarlífinu12
Hópakstur traktora
og fornvélasýning
Wings’n Wheels fornvélasýning
fer fram á Tungubakkaflugvelli í
tengslum við bæjarhátíðina um
helgina. Sýningin er haldin á
laugardaginn kl. 12-17 og er að-
gangur ókeypis. Þar er hægt að virða
fyrir sér gamlar flugvélar, fornbíla,
dráttarvélar, mótorhjól og kl. 16:30
verður karamellukastið vinsæla.
Þeir sem eiga spennandi tæki sem
ættu heima á sýningu eru beðnir
um að hafa samband við Sigurjón í
s. 858-4286. Hátíðin hefst kl. 12 með
hópakstri dráttarvéla, fornbíla og
tækja um Mosfellsbæ. Ferguson-
félagið stendur fyrir akstrinum og
hvetur alla til þátttöku.
Útvarp Mosfellsbær í
loftinu um helgina
Útvarp Mosfellsbær verður starfrækt
um hátíðarhelgina Í túninu heima
en útvarpið var endurvakið í fyrra.
Liðin eru 36 ár síðan hópur mos-
fellskra ungmenna tók sig saman
og stofnaði útvarpsstöð í þessum
anda þegar Mosfellssveit varð að
Mosfellsbæ. Á bæjarhátíðinni um
helgina verða útsendingar alla helg-
ina með sérstakri hátíðardagskrá kl.
10-18. Hægt verður að hlusta á FM
106,5 og á Spilaranum. Bókasafns-
starfsmennirnir og hlaðvarpskon-
urnar Ástrós Hind Rúnarsdóttir og
Tanja Rasmussen hafa umsjón með
útvarpinu og hvetja bæjarbúa til
að senda inn óskalög og kveðjur í
gegnum utvarpmoso@gmail.com
eða á instagramsíðu útvarpsins,
@utvarpmoso.
Fimmtudaginn 24. ágúst opnar Kaffisæti
pop-up kaffihús í Lágafellslaug. Eftir að
hafa byrjað mjög seint að drekka kaffi hefur
Andrés Andrésson hent sér út í djúpu laug-
ina og meira til. Baristanámskeið í Flórens
á Ítalíu, heimsókn í kaffiræktun á Gran
Canaria og samtöl við fólk úr bransanum.
„Þetta eru ákveðin kaflaskil hjá mér eftir
að hafa unnið skrifstofustarf síðustu 15 ár.
Mig langaði að breyta til og prófa eitthvað
allt annað. Það er mikil spenna í bland við
hæfilegt magn af stressi fyrir þessu öllu.“
Ég elska góðan espresso
Hvernig byrjaði þetta allt saman?
„Ég á það til að byrja ný áhugamál af
miklum móð en oft hverfur áhuginn á
nokkrum vikum. Það gerðist hins vegar
ekki með kaffið, og áður en ég vissi af var
ég byrjaður að lesa doktorsverkefni um
hvernig á að gera espresso. Ég elska góðan
espresso.
„Síðasta vetur ákvað ég að best væri að
fara til mekka espressogerðar og læra af
meisturunum á Ítalíu og ég sé sko ekki eftir
því. Það er miklu skemmtilegra að hitta fólk
og læra af því heldur en að horfa endalaust
á YouTube. Eftir þessa ferð var ekki aftur
snúið.“
Getur aukið lífsgleðina
Hvernig er ítölsk kaffimenning miðað við
íslenska?
„Fyrir það fyrsta þá er kaffi bara espresso.
Ekkert sem heitir espresso. Magn af kaffi,
og þar af leiðandi koffíni, er minna í hverj-
um bolla. Það leyfir manni að drekka fleiri
kaffidrykki yfir daginn, sem er kostur fyrir
kaffiþyrsta. Einnig er vinsælt að hittast
í kaffi en það eru miklu styttri hittingar
heldur en hér heima. Kannski bara 10 mín,
rétt til að taka stöðuna á vinunum. Svo fleiri
kaffibollar og fleiri samtöl, það getur bara
aukið lífsgleðina.“
Gera eitthvað fyrir Mosfellinga
En af hverju Lágafellslaug?
„Ég vildi einfaldlega gera eitthvað
skemmtilegt fyrir Mosfellinga. Mér datt
Lágafellslaug í hug þar sem aðstaðan er til
fyrirmyndar en mér fannst vanta að geta
fengið sér gott kaffi. Ég ræddi við bæinn og
allir tóku bara vel í þessa hugmynd.“
Kaffisæti verður með opið 10-14 frá
fimmtudeginum 24. ágúst og fram á sunnu-
dag. Svo verður opið á sama tíma fyrstu
þrjár helgarnar í september (laugardag og
sunnudag).
Hægt er að fylgjast með Kaffisæta
á Instagram þar sem hann deilir
vegferðinni að opnun kaffihússins.
Kaffisæti opnar fyrir bæjarhátíðina• Andrés Andrésson hendir sér í djúpu laugina
Pop-up kaffihús í Lágafells-
laug opnar á fimmtudaginn
andrés andrésson
undirbýr opnun
Rúnar Óli Grétarsson, 15 ára Mosfellingur, lenti í alvarlegu reið-
hjólaslysi þann 15. ágúst í Álafosskvosinni.
Rúnar Óli var á leið heim úr vinnu en hann hefur verið að vinna
sem leiðbeinandi við skátanámskeið í sumar. Hann missir stjórn á
hjólinu á mikilli ferð og stingst beint fram fyrir sig með alvarlegum
afleiðingum.
„Sjúkrabíllinn var fljótur á staðinn og í fyrstu virtust meiðslin
ekki eins alvarleg og síðar kom í ljós. En Rúnar Óli hlaut miklar
innvortis blæðingar, rifið milta, úlnliðsbrot á annarri hendi og
stóran og ljótan skurð á hinni hendinni auk þess að vera marinn
og krambúleraður.
Hann var tvo sólarhringa á gjörgæslu og var í framhaldinu fluttur
á Barnaspítalann þar sem hann er ennþá en vonast til að vera kom-
inn heim fyrir næstu helgi,“ segir Eva Ósk Svendsen móðir Rúnars
Óla.
Afleiðingar slyssins hefðu verið alvarlegri
Þau mæðgin vilja fyrst og fremst greina frá þessu slysi í forvarna-
skyni því hjálmur Rúnars Óla bjargaði miklu. Rúnar Óli er virkur í
björgunarsveitinni og vill því leggja mikla áherslu á forvarnir eins
og að vera með hjálm á hjóli, alveg sama á hvað aldri einstakling-
urinn er.
„Læknarnir á gjörgæslunni töluðu um að það væri ekki sjálfsagt
að 15 ára unglingsdrengur væri með hjálm en að það væri alveg
á hreinu að afleiðingar slyssins hefðu orðið meiri og alvarlegri ef
hann hefði ekki verið með hjálminn.
Sem betur fer slapp hann við að fara í aðgerð vegna innvortis
blæðinga en fram undan er langt og strang bataferli,“ segir Eva
Ósk að lokum og vill koma á framfæri þakklæti fyrir stuðning til
fjölskyldunnar.
Rúnar Óli lenti í alvarlegu slysi í Kvosinni
Hjálmurinn
bjargaði miklu
tveir sólarhringar
á gjörgæslu