Muninn - 01.04.2023, Blaðsíða 21
H-ið er félagsfræði bekkur þar sem ýmsir skemmtikraftar hafa komið saman í
einn bekk. Bekkurinn hefur að geyma aðal skvísur skólans ásamt kraftmiklu
íþróttafólki. Stelpurnar eru jafn duglegar að bera á sig brúnkukrem og strákarnir eru
að fara út í fótbolta. Það fer samt frekar lítið fyrir hópnum og eru þau ekki mjög
félagslynd þrátt fyrir að vera á félagsfræðibraut.
A-ið stendur fyrir allskonar og arty. Já, bekkurinn er fjölbreyttur en þáu hafa öll
komið saman til að læra meira um heiminn, menningu hans og tungumálin.
Bekkurinn er eins og sér samfélag innan skólans en fólkið innan samfélagsins er gott
og skemmtilegt. Bekkurinn er hávær en sumir segja að þau séu listaspírur í afneitun.
Bekkurinn er virkur í félagslífinu og á bekkurinn t.d. þó nokkra fulltrúa í
Huginsstjórn. Bekkurinn tekur þátt í öllum viðburðum skólans og þau missa ekki af
neinu.
Sf
1,1 Það fer sko alls ekki mikið fyrir Y bekknum og virðist sem svo að fáir viti yfir
höfuð að bekkurinn sé til. Samt sem áður er yndislegt fólk í bekknum þó það fari lítið
fyrir þeim. Bekkurinn hangir gjarnan fyrir utan H5.
FIL
‘FL LANG BESTI BEKKURINN! The “theatre kids and popular kids” dynamic
virkar svo vel hjá þessum bekk! aldrei neitt drama, þau eru öll svo comfortable með
each other, þetta er besti bekkurinn til að vera í. Allir svo fyndnir og kurteisir. Manni
líður svo vel í þessum bekk. Þetta er ekki bekkur, heldur ein stór fjölskylda. í.FL is love,
t.FL is life.” - ónafngreint.
fg
l! Bekkurinn er félagsfræðibekkur sem var settur saman af allskonar ólíku fólki og
því ekki furða hvað hann er klíkuskiptur. Bekkurinn er ekki jafn náinn og aðrir bekkir
en þar er samt sem áður frábært fólk sem elskar MA. F-ið stendur fyrir finasta fólk!
Bekkurinn lætur ekki mikið fyrir sér fara og veldur því engum vandræðum. Bekkurinn
er virkilega duglegur og draumabekkur fyrir kennara þar sem þau eru svo prúð og
stillt.
IL
i L-ið er sviðslistabrautin. Þar eru helstu listaspírur skólans sem eru jafnframt
ótrúlega skemmtilegar. Bekkurinn hefur að geyma alveg ótrúlega skemmtilegt fólk
sem hefur mikinn áhuga á leiklist og öllu sem því fylgir. Bekkurinn er hópur af
gleðigjöfum sem hafa ótrúlega gaman af félagslífi og elska að vera með fólki.
Bekkurinn er einnig mjög virkur í félagslífi skólans og duglegur að taka þátt.