Muninn

Volume

Muninn - 01.04.2023, Page 69

Muninn - 01.04.2023, Page 69
BORn KRISTR - mÓTI Fundarstjóri, Þetta er ekki flókið. Við þekkjum öll einhver skilnaðarbörn og ekkert okkar hefur einhvern tímann hugsað „já þessi manneskja er frábær“. Nei það fyrsta sem þið hugsið er „ojjj þessi manneskja er ógeðsleg“. Því kæru gestir ef þið hugsið um einkenni skilnaðarbarna þá eru alltaf sömu hlutirnir sem koma upp í huga ykkar. Að þetta eru leiðindapúkar sem hata allt sem er gaman. Þau sýna engar tilfinningar, þau tala ekki um annað en að þau séu skilnaðarbörn og sækjast endalaust eftir vorkunn því foreldrar þeirra elskuðu þau ekki. En mín kæru skilnaðarbörn, það sem þið skiljið ekki er að þið eigið ekki skilið ást og umhyggju og vitiði hvers vegna? Vegna þess að þið eruð ástæða þess að foreldrar ykkar skildu. Það er hávísindalega sannað að 99% skilnaða gerast eftir að börn eru komin í spilið. Þetta liggur í augum uppi. Skilnaðarbörn, ÞIÐ ERUÐ VANDAMÁLIÐ. Það er einnig sannað að skilnaðarbörn eiga erfiðara með að fóta sig í samfélaginu, lifa á kerfmu og hafa ekkert að gefa. Því eruð þið veikburða þungi sem við hin þurfum að burðast með á bakinu í gegnum lífið. Nú er ég mikill aðdáandi Charles Darwin og hans þróunarkenningu. Við þurfum að losa okkur við skilnaðarbörn því þau fara á mis við það að þeir hæfustu lifi af. Því þau eru langt frá því að vera hæf. Ég mæli með bættum heimi, ég mæli með betrumbætingu samfélagsins og ég mæli með vellíðan og því mæli ég á móti skilnaðarbörnum.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.