Verzlunartíðindi - 01.12.1957, Síða 3
Skemmtilegt starf
segir Valdimar Ólafsson verzlunarráðunautur.
Verzlunartíðindin hafa komið að máli við Valdi-
mar Ólafsson verzlunarráðunaut og innt hann
eftir fréttum af starfi hans hér, eftir að hann
kom heim frá Bandaríkjunum síðast liðið vor.
— Eftir að ég kom til Reykjavíkur í byrjun maí-
mánaðar vann ég fyrst rúmar tvær vikur í kjöt-
verzlun Tómasar Jónssonar á Laugavegi 2, en sölu-
búðinni þar hafði skömmu áður verið breytt í
sjálfsafgreiðsluverzlun að mestu leyti. Ég gerði
tillögur um lítils háttar breytingar á fyrirkomu-
lagi og tel búðina hafa heppnast vel, og ég held
að forráðamenn verzlunarinnar séu ánægðir með
hana.
Siðan hef ég unnið á ýmsum stöðum hér í bæn-
um, við afgreiðslustörf svo og við teikningar
og breytingar á sölubúðum. Búið er að opna tvær
búðir sem ég vann að undirbúningi við, verzlun
Þórðar B. Þórðarsonar í Hafnarfirði og verzlunina
Straumnes í Skjólunum. Þær eru báðar í sjálfs-
afgreiðsluformi. Hvorug þessara sölubúða er þó
fullgerð enn. Þótt innflutningsleyfi hafi fengist
fyrir ýmsu sem panta þurfti erlendis frá, körfum
o. fl., þá hefur önnur verzlunin ekki fengið
greiðsluheimild enn, en ég vona að þessar verzl-
anir standi bráðlega altilbúnar með fullkomna
þjónustu við viðskiptavinina.
I undirbúningi er gjörbreyting á verzluninni
Kjöt og Fiskur á Baldursgötu, sem ég teiknaði og
undirbjó, og fleiri breytingar verzlana eru á döf-
inni.
Mikill áhugi fyrir umbótum.
Áhugi kaupmanna hér fyrir umbótum á sölu-
búðum er vakinn og flestir virðast kjósa sér sjálfs-
afgreiðslufyrirkomulagið, a. m. k. að einhverju
leyti. En mér þykir fullmikið óðagot á mönnum,
þegar þeir taka ákvörðun um að breyta til. Allt
þarf helzt að ske í grænum hvelli. En gjörbreyt-
ing á gamalli sölubúð krefst mikillar og nákvæmr-
ar athugunar, áður en hafizt er handa, svo árangur
verði sem beztur. Aðstæður eru mismunandi á
hverjum stað, svo sama fyrirmyndin dugar ekki
á tveim stöðum óbreytt. Það tekur allt sinn tíma.
Þegar á að innrétta verzlun í nýju húsi er mjög
æskilegt að allar athuganir séu gerðar áður en
fullgengið er frá teikningu byggingarinnar. Það
getur sparað mikla fyrirhöfn og kostnað og borið
betri árangur.
En þó að starf mitt hafi nú í byrjun einkum
snúist um breytingar á sölubúðum, þá er það eigi
að síður fólgið í hvers konar leiðbeiningarstarf-
semi um rekstur fyrirtækja, starfsfólk, skipulag
á „lager“ og bókhaldi.
Vissulega er ekki allt fengið með breytingu á
sölubúðinni. Hún er aðeins fyrsti áfanginn. Síðan
verður að fylgja þeim umbótum eftir með vakandi
auga fyrir öllu því, sem miðar að bættri þjónustu
og hagkvæmari rekstri.
Skemmtilegt starf.
— Hvernig líkar þér svo þetta starf?
Ágætlega. Hér er áreiðanlega góður jarðvegur
fyrir svona fræðslustarf. íslenzkir kaupmenn eru
vissulega ekki eftirbátar annarra um áhuga fyrir
því að endurbæta verzlunarhætti sína. Ég hef þeg-
ar sannfærzt um það. Og eitt þykir mér eftirtektar-
vert: íslenzkar matvöruverzlanir hafa fram að
þessu verið miklu fullkomnari en þær dönsku, og
á ég þá við sölubúðir, þar sem afgreitt er yfir borð-
ið. En nú tel ég muninn hinsvegar orðinn jafn
mikinn á hinn bóginn, hvað þessi lönd snertir.
Veljið aðeins það bezta!
Veljið
ESTRELLA-skyrtur
hálfstífur flibbi
og hleypt efni.
Hámark gæðanna fyrir lágmark verðsins.
I
VERZLUNARTÍÐINDIN
51