Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Blaðsíða 7
Kaffibrennsla
O. Johnson & Kaaber
Undanfarið hefur Kaffibrennsla
O. Johnson & Kaaber h.f. efnt til
móttöku fyrir matvörukaupmenn
og sýnt þeim hina glæsilegu verk-
smiðju sína, sem nýlega er risin á
hálsinum fyrir ofan Borgarmýri í
Grafarheiði.
Ætlunin er að gefa öllum mat-
vörukaupmönnum, a. m. k. á
Faxaflóasvæðinu, kost á að skoða
verksmiðjuna, og koma tveir hóp-
ar í viku hverri til móttökunnar,
u. þ. b. 10 menn í hverjum hóp.
Verksmiðjan er staðsett á fögrum
stað með útsýn vfir sundin blá, en
að baki víðfeðman fjallahring.
Hráefnið í þjóðardrykk íslend-
inga, kaffið, hefur um áratuga-
skeið verið háð innflutningshöft-
um, og hefur því verið keypt frá
Brasilíu á vöruskiptagrundvelli.
Úrvals gæðaflokkar af Rio kaffi
hafa orðið vinsælastir hér af þess-
um brasilísku tegundum. Aðrar
og ólíkar kaffitegundir eru rækt-
aðar annars staðar í heiminum, og
má þar nefna Javakaffi og Mokka-
kaffi. Nú hafa þau gleðilegu tíð-
indi gerzt, að innflutningur á
óbrenndu kaffi hefur verið gefinn
frjáls frá öllum löndum heims.
Þegar ákveðið var að kaffi færi á
frílistann, hóf Kaffibrennsla O.
Johnson &: Kaaber h.f. undirbún-
ing að byggingu nýrrar kaffi-
brennslu. Ýtti sú staðreynd undir
þessa framkvæmd, að sjá rnátti að
stækka yrði gömlu kaffibrennsluna
í náinni framtíð, vegna aukinna
viðskipta.
Nýja kaffibrennslan er byggð með
fullkomnasta útbúnaði, sem nú er
fáanlegur til framleiðslu á hvers
konar blöndum af brenndu og
möluðu kaffi og einnig ómöluðum
brenndunt baunum.
Nýja kaffibrennslan er risin af
grunni og tekin til starfa. Hafin
er framleiðsla og dreifing á O.
Johnson &: Kaaber Java- og Mokka-
kaffi. Kaffið er framleitt í nýjum
vélum og pakkað eftir nýtízku að-
ferðum. Má með fullkomnu örvggi
geyma kaffið, sem pakkað er í
þessar nýju umbúðir, eins lengi
og hver óskar.
Skulu hér tilfærðar þær upplýsing-
ar, sem gefnar eru á nýju pökkun-
um:
,,Kaffið í þessum pakka er blanda
af úrvals kaffitegundum, sem voru
blandaðar strax eftir brennslu og
pakkaðar um leið með lofttæming-
araðferð.
Ólafur Ó. Johnson forstjóri segir frá
skipulagi og starfi verksmiðjunnar.
Vélin limir merki
hcegri umferðar á kaffipakkana.
VF.RZLUNARTÍÐINDI
67