Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Síða 14

Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Síða 14
Verzlunarráð r Islands 50 ára Hinn 17. september síðastliðinn varð Verzlunarráð íslands 50 ára, en það var stofnað 17. sept. 1917. Verzlunarráð íslands er félagsskapur kaupsýslumanna og fyrirtækja, sem reka sem aðalatvinnu verzlun, iðnað, tryggingastarfsemi, bankaviðskipti, skipamiðl- un, siglingar og aðra atvinnu skylda þessum atvinnu- vegum. Markmið ráðsins er fyrst og fremst að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum þessara atvinnu- greina, styðja að jafnvægi og stöðugum vexti í efna- hagslífi landsins og efla frjálsa verzlun og frjálst framtak. Á það á þennan hátt að vera vettvangur samstarfs milli höfuðgreina viðskiptalífsins að sam- eiginlegum framfara- og hagsmunamálum þeirra. Formenn Verzlunarráðs íslands hafa verið: Garðar Gíslason og var hann kosinn fyrsti formaður ráðsins á fyrsta stjórnarfundi þess, er var haldinn 21. sept. 1917 i skrifstofu þess að Kirkjustræti 9 B. Var Garðar formaður til 1921 og aftur frá 1922 til 1934, en í stjórn Verzlunarráðs átti hann sæti til 1942. Ólafur Johnson var formaður árið 1921, og í stjórn þess til 1929. Árið 1934 var Hallgrímur Bene- diktsson kjörinn formaður ráðsins og aðrir þeir, er gegnt hafa þeim störfum, eru: Eggert Kristjánsson, Gunnar Guðjónsson, Þorvaldur Guðmundsson, Magnús f. Brynjólfsson og nú Kristján G. Gíslason. Kaupmannasamtök íslands færðu Verzlunarráðinu að gjöf á afmælisdaginn ljósprentað eintak af Flat- eyjarbók, og afhenti Pétur Sigurðsson, varaformaður K.Í., gjöfina á hátíðarsamkomu á afmælisdaginn. Verzlunartíðindin óska Verzlunarráði íslands allra heilla í tilefni hálfraraldar áfangans. jib. KAUPMENN! ávallt fyrirliggjandi: Niðursoðnir og þurrkaðir ávextir APPELSÍNUR EPLI SÍTRQNUR Heildsölubirgðir: Eggert Kristjánsson & Co. h.f. s™ moo 74 VERZLUNARTÍÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.