Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Qupperneq 15
FRÁ SÉRGREINA
FÉLÖGUM
Kaupmannafélag
Akraness
Fimmtudaginn 16. nóvember var aðalfundur Kaup-
mannafélags Akraness haldinn í samkomuhúsinu Röst
á Akranesi.
Formaður félagsins, Einar Ólafsson, setti fundinn og
stýrði honum.
Bauð hann velkomna til fundarins Sigurð Magnús-
son framkvæmdastjóra Kaupmannasamtaka íslands
og Jón I. Bjarnason ritstjóra Verzlunartíðinda.
Formaður flutti skýrslu stjórnar og rakti lielztu at-
riði í félagsstarfinu s.l. ár. Nefndi liann sérstaklega
lokun sölubúða á laugardögum yfir sumarmánuðina,
sem mikil samstaða var um á Akranesi s.l. sumar,
en kom aðeins til framkvæmda einn laugardag, vegna
utanaðkomandi mótstöðu.
Formaður talaði einnig um hina svokölluðu „mark-
aði“, sem setja sig niður á Akranesi, ekki síður en
annars staðar, og eru oft á tíðum dýrseldari á sam-
bærilega vöru en verzlanir, sem fyrir eru á staðnum.
Fráfarandi formaður, Einar Ólafsson, baðst eindregið
undan endurkjöri sem formaður eða í stjórn.
í stjórn voru kjörnir:
Edvarð Friðjónsson formaður og meðstjórnendur
þeir Flannes Jónsson og Ólafur Guðjónsson.
Fulltrúi í fulltrúaráð Kaupmannasamtaka íslands
var endurkjörinn Elías Guðjónsson og til vara Ólaf-
ur Guðjónsson.
Framkvæmdastjóri Kaupmannasamtakanna, Sigurður
Magnússon, sagði frá starfsemi og uppbyggingu sam-
takanna. Sigurður kom víða við í ræðu sinni og
talaði meðal annars um:
Nýja verzlunarlöggjöf, farandsölu, framhjásölu, Verzl-
unarbanka íslands h.f., Verzlunarlánasjóð, Stofnlána-
sjóð matvöruverzlana, útboð á sloppaþvotti, samstarf
við Seðlabankann um hagskýrslugerð, mjólkursölu-
málið og launakjarasamninginn.
Fráfarandi formaður, Einar Ólafsson, tók til máls og
þakkaði framkvæmdastjóra gott erindi, þakkaði sam-
starfið á liðnum árunt og óskaði nýkjörinni stjórn
allra heilla.
Félag blómaverzlana
Aðalfundur Félags blómaverzlana var haldinn 2. nóv-
ember í fundarsal Kaupmannasamtakanna að Marar-
götu 2.
Formaður félagsins, Ólafur Helgason, setti fundinn
og stýrði honum.
Gjaldkeri félagsins, Guðmundur Grímsson, flutti
reikninga félagsins og voru þeir samþykktir sam-
hljóða.
Fráfarandi formaður, Ólafur Helgason, var einróma
endurkjörinn. Aðrir í stjórn voru kjönir þeir: Helgi
Filippusson varaformaður, Guðmundur Grímsson
gjaldkeri, Jón H. Björnsson ritari og Hendrik Bernd-
sen meðstjórnandi.
í varastjórn voru kosin Aðalheiður Knudsen og Aage
Foged.
Endurskoðendur voru kjörnir þeir: Þórður Þorsteins-
son og Bragi Einarsson.
Fulltrúi í fulltrúaráð Kaupmannasamtaka íslands var
kjörinn Guðmundur Grímsson og til vara Jón R.
Björgvinsson.
Félag búsáhalda—
og járnvörukaupmanna
Aðalfundur Félags búsáhalda- og járnvörukaupmanna
var haldinn 20. október í skrifstofu Kaupmannasam-
takanna að Marargötu 2.
Formaður félagsins, Björn Guðmundsson, setti fund-
inn og stýrði honurn.
í upphafi fundar minntist formaður látins félaga,
Sigurðar Kjartanssonar. Heiðruðu fundarmenn minn-
ingu hans með því að rísa úr sætum.
Formaður flutti skýrslu stjórnar félagsins um starf-
semina s.l. ár.
Gjaldkeri félagsins, Sigurður Sigurðsson, lagði fram
reikninga félagsins fyrir s.l. ár, og voru þeir sam-
þykktir samhljóða.
Björn Guðmundsson var einróma endurkjörinn for-
rnaður félagsins og meðstjórnendur þeir: Sigurður
Sigurðsson og Páll Jóhannesson.
Varamenn í stjórn voru kjörnir þeir: Jón Þórðarson
og Henrik P. Biering.
Endurskoðandi var kjörinn Kristinn Einarsson.
Fulltrúi í fulltrúaráð Kaupmannasamtakanna var
kjörinn Guðmundur Jónsson og til vara Henrik P.
Biering.
VERZLUNARTÍÐINDl
75