Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Page 16

Verzlunartíðindi - 01.12.1967, Page 16
NÝJAR VERZLANIR Blómaliöllin sf. Laugardaginn 23. september s.l. var opnuð ný blóma- verzlun, Blómahöllin að Álfshólsvegi 11 í Kópavogi. Markmið hins nýja fyrirtækis er að reka fullkomna blómaverzlun á sem víðtækustum grundvelli, og mun hún kappkosta að hafa á boðstólum þá fjölbreytt- ustu og beztu vöru, sem kostur er á. Einnig er ætl- unin að veita viðskiptavinum upplýsingar um sér- fræðileg vandamál í ræktun almennt, bæði úti og inni. Verzlunin hefur beint samband við alla blómarækt- endur á Suðvesturlandi, og er það forsenda þess að neytendur hafi úr sem mestu og beztu að velja í blómakaupum. Þá er lögð rík áherzla á að hafa í verzluninni fjöl- breytt úrval af hvers konar vörum, erlendum og inn- lendum, sem tilheyra ræktun og heimilisprýði, t. d. blómlauka, skreytingarvörur, blómapotta og ílát, fræ, plöntulyf, jólatré og aðra jólavöru og ótal margt annað. Áherzla er lögð á blómaskreytingar fyrir öll tækifæri, og mun fyrirtækið annast heimsendingu á öllu slíku. Verzlunin er í nýjum húsakynnum miðsvæðis í Kópavogskaupstað (nánar tiltekið við hlið Kópavogs- apóteks). Flatarmál verzlunarinnar er um 160 m2, auk vinnu- pláss og vörugeymslu. Sérstök áburðargeymsla er í kjallara, enda mun fyrirtækið kappkosta að veita al- menningi fullkomnustu þjónustu í sölu og dreifingu áburðar fyrir alla útiræktun. Þar mun einnig fara fram sala á jólatrjám og greni, og eru rúmgóð bíla- stæði, bæði fyrir framan verzlunina sjálfa svo og kjallarann. Innréttingar eru með mjög nýstárlegu sniði og afar skemmtilega fyrirkomið, og hefur Snorri Hauksson, innanhússarkitekt, teiknað og skipulagt Jiær. IJm smíði þeirra hefur Smíðastofa Daða Guðbrandssonar séð. Uppsetningu á lofti og lýsingu önnuðust Páll M. Jónsson, trésmíðameistari, og Páll Þorláksson, raf- virkjameistari. Eigendur hins nýja fyrirtækis eru Bóas Kristjánsson blómaskreytingamaður og Jón R. Björgvinsson garð- yrkjufræðingur, báðir búsettir í Kópavogi. Frú Elsa Óskarsdóttir. Vörvimarkaðurinn hf. Föstudaginn 8. september opnaði að Ármúla la verzl- unarfyrirtækið Vörumarkaðurinn h.f. Fyrirtæki J>etta er með nýju sniði sem ekki hefir tíðkast a. m. k. hér á landi áður. Það var Jjví með nokkurri forvitni að við hittum að máli forstjóra fyrirtækisins, Ebeneser Ásgeirsson. I. — Þetta er nýtt hús og byggt með nýstárlegum hætti. — Húsið er nýtt og er raunar í byggingu ennþá. Það er byggt með ærið nýstárlegum hætti. Gólfplöturnar eru t. d. allar steyptar niðri á jafnsléttu, og Jreint síðan lyft á sinn stað í byggingunni með sérstökum tækjum. Þessi bygginggarmáti er uppfundinn í Banda- ríkjunum, og er orðinn nokkuð viðtekinn þar. Þetta hús er það fyrsta hér á landi, sem byggt er með þessari aðferð. 76 VERZLUNARTÍÐINDI

x

Verzlunartíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verzlunartíðindi
https://timarit.is/publication/1845

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.