Verzlunartíðindi - 01.02.1990, Blaðsíða 5
NOKKRAR GRÁÐUR Á CELSÍUS
GETA RÁÐIÐ ÚRSLITUM
NÁKVÆMÞIÓNUSTA
TRYGGIR VERÐMÆTI
Þekking flutningafyrirtækis á þörfum
viðskiptavina speglast í öruggu flutninga-
kerfi enda ræður vörumeðferð oft úrslitum
um hvaða verð fæst fyrir farminn þegar á
markað er komið.
Þegar EIMSKIP flytur vandmeðfarna
vöru á borð við fisk eða ávexti fylgjast
starfsmenn félagsins nákvæmlega með
hitastigi og ástandi gáms - allt frá dyrum
seljanda að dyrum kaupanda.
Gámar EIMSKIPS eru í stöðugri endur-
nýjun og eru þeir ásamt vöruskálum félags-
ins sniðnir að kröfum viðskiptavina um
meðferð og hitastig hverrar vöru.
ALHLIÐA ÞJÓNUSTA
LÆKKAR KOSTNAÐ
Þau fyrirtæki, sem velja alhliða flutn-
ingaþjónustu EIMSKIPS, komast hjá
óþarfa umstangi og áhættu og lækka þann-
ig heildardreifingarkostnað sinn.
Fullkomið upplýsingakerft EIMSKIPS
auðveldar eftirlit með vörum viðskiptavina
og dregur úr hættu á að sendingar þeirra
misfarist.
Þeir geta á skömmum tíma fengið
nákvæmar upplýsingar um hvar varan er í
flutningakerfinu.
Sú vitneskja reynist ómetanleg við
birgðahald, skipulagningu og í samskipt-
um við erlenda viðskiptaaðila.
ÖRUGG ÞJÓNUSTA GREIÐIR
FYRIR VIÐSKIPTUM
Forráðamenn fyrirtækja vita að í áætl-
unum sínum geta þeir reitt sig á faglega
þjónustu og þróað flutningakerfi
EIMSKIPS.
Það er EIMSKIP kappsmál að njóta þess
trausts áfram með því að vera vakandi yfir
síbreytilegum þörfum viðskiptavina sinna.
EIMSKIP
VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ