Íslenska leiðin - 01.10.2001, Síða 21
lagt að stjórnvöldum að nýta allar undanþágur og frávik sem
heimilaðar kunni að vera.
Yfirlýst markmið verkalýðshreyfingarinnar með nýjum og
bættum reglum á vinnumarkaði á Evrópuvísu er að treysta
réttindi og öryggi launafólks um leið og viðurkennd er nauðsyn
sveigjanleika að ákveðnu marki, sem gagnast getur bæði fólki
og fyrirtækjum.
I ólíkri afstöðu samtaka atvinnurekenda og verkalýðshreyfing-
arinnar endurspeglast ólík og oft andstæð sjónarmið þessara
aðiia til hagsmuna launafólks og fyrirtækjanna. Gagnrýni sam-
taka atvinnurekenda og stuðningur verkalýðshreyfingarinnar
mótast enn fremur af því að áhrif Evrópureglnanna hafa um
margt orðið meiri hér á landi en víðast annars staðar í Evrópu,
ef England og írland eru frátalin. Pað á einkum við um ráðning-
arrétt starfsmanna, rétt þeirra til upplýsinga og samráðs af
hálfu atvinnurekenda og vinnuvernd. Skýringin á því er sú að
réttindi launafólks á þessum sviðum voru vanþróuð samanborið
við þau lönd sem íslendingar hafa einkum viljað bera sig við.
Afstaða Alþýðusambands íslands er og hefur verið sú að stjórn-
völdum og aðilum vinnumarkaðarins sé bæði rétt og skylt að inn-
leiða Evrópureglur undanbragðalaust hér á landi og að samtök
atvinnurekenda og verkalýðshreyfingin eigi að gegna lykilhlut-
verki í því starfi. Það sé síðan verkefni stjórnvalda að fylgja mál-
um eftir og taka af skarið náist ekki samstaða meðal aðila vinnu-
markaðarins. Pað erjafnframt skoðun verkalýðshreyfingarinnar
að engin ástæða sé til að gefa íslenskum fyrirtækjum afslátt af
réttindum starfsmanna eða öryggi til að standast samkeppni á
mörkuðum. Þvert á móti hljóti það að vera markmiðið að fyrirtæki
hér á landi séu svo öflug að þau geti boðið starfsmönnum sín-
um bestu kjör og réttindi.
Jákvæð afstaða ASÍ til Evrópusamvinnunnar og þróunar henn-
ar byggir á þeim árangri sem samstarfið hefur skilað launafólki.
Arangurinn felst í þeim auknu réttindum sem launafólk býr við.
Arangurinn felst líka í því að launafólk og samtök þess hafa
fengið verkfæri til að ná fram rétti sínum á alþjóðavettvangi ef
íslensk stjórnvöld standa ekki við skuldbindingar sínar. Þannig
gengna Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA dómstóllinn mikilvægu
eftirlits og aðhaldshlutverki. Á hvoru tveggja hefur reynt þegar
kemur að vinnumarkaðsþætti EES samningsins.
Jákvæð áhrif Evrópusamvinnunnar á réttarstöðu launafólks
eru um leið enn ein staðfesting þess að árangur verkalýðshreyf-
ingarinnar hér á landi og ávinningar launafólks hafa jafnan orð-
ið mestir og varað lengst, þegar þessir aðilar og bandamenn
þeirra hafa byggt baráttu sína á reynslu og árangri alþjóðlegr-
ar verkalýðshreyfingar. Því má heldur ekki gleyma að verka-
lýðshreyfingin er í grunninn og hefur alltaf verið alþjóðleg.
Frekari þróun Evrópusamvinnunnar
Þrátt fyrir ávinningana af EES samingnum fer ekki á milli mála
að hann er að veikjast. Áherslur Evrópusambandsins hafa
færst í aðrar áttir og áhugi og þekking stjórnmála- og embætt-
ismanna innan ESB á samningnum hefur minnkað hröðum
skrefum. Því er orðið sífellt erfiðara fyrir EFTA-ríkin að ná fram
þeim réttindum sem samningurinn gefur. Þar við bætist að
vegna þróunar Evrópusambandsins og takmarka EES samn-
ingsinsfalla stöðugt fleiri nýviðfangsefni á Evrópuvísu utan EES
samstarfsins. Það gildir einnig um vinnumarkaðinn. EES-samn-
ingurinn hefur skipt miklu máli fyrir íslenskt atvinnulíf og miklu
skiptir að veikari staða hans hafi ekki neikvæð áhrif á atvinnulíf
hér á landi, t.d. að fyrirtæki flytji héðan til þess að komast betur
inn á innri markaðinn. í þessu sambandi má ekki gleyma áhrif-
um nýju evrópsku myntarinnar sem kann að valda því að fyrir-
tæki færi sig inn á evrusvæðið.
Evrópusamvinnan á vettvangi ESB er í stöðugri þróun og staða
íslands og EES samningsins markast af því. Valið sem íslend-
ingar standa frammi fyrir er um það hvort reyna á að dýpka og
þróa Evrópusamstarfið frekar eða láta það fjara út. Obreytt
ástand er einfaldlega ekki kostur í stöðunni. Það er á þessum
grunni og á grundvelli þess árangurs sem Evrópusamvinnan
hefur skilað launafólki og samfélaginu í heild, sem ASÍ hefur
skilgreint það sem eitt af helstu verkefnum sínum að efla um-
ræðuna um Evrópusamvinnuna og stuðla að því að spurningin
um ESB aðild og skilgreining á samningsmarkmiðum komist
fyrir alvöru á dagskrá hér á landi.
ISLAN DSBAN Kl
íslenska leiðin • Hagsmunir launafólks og Evrópusamstarfið Bls. 21