Heima er bezt - 01.09.2004, Page 20
Guðmundur
Sœmundsson:
Margslungnar minningar leita á hugann þegar ég geng milli
hrörnandi húsa eyðikauptúnsins í Haganesvík, stend á bæjar-
stœðinu í Neðra-Haganesi, ek yfir Lágheiði ogsé Olafsfjörð
birtast milli brattra fjalla við bláan sœ, eða kem hina leiðina
um Múlagöngin frá Eyjafirði. Fljótin í Skagafjarðarsýslu og
Olafsfjörður eru falleg héruð á utanverðum Tröllaskaga.
Þessi héruð eru hluti afbernsku og œsku minni, vonum, þrám
og leikjum. Aukþess samsafn minninga af fólki, sem skóp
umhverfi mínu hlýjan heim, löngu áður en maður kynntist al-
vöru lífsins fyrir utan. Líklegast hafa þessir menn og konur
hinna löngu horfnu ára, verið eins og annað fólk á Islandi á
þessum tíma, en fyrir mér eru þetta sögupersónur bernsku
minnar.
404 Heima er bezt