Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2006, Page 62
BRIAN MCFARLANE
um til að koma sögunni tíl skila og aðrir komi jafn vel tíl greina. I þessu
efni kemur í hugann háðsk lýsing Anthonys Burgess sem sagði: „Eftír
sérhverri metsöluskáldsögu verður að gera kvikmynd út frá þeirri skoð-
un að bókin sjálf kveiki löngun til hinnar sönnu svölunar - orðaskugginn
verður að ljósi, orðið gerist hold“.22 Og kannski er hér að fínna samsvör-
un við það íyrirbæri nítjándu aldar sem Michael Chanan lýstí í Draumn-
um sem sparkar [The Dream that Kicks], þegar bókmenntaverk voru gefin
út með myndskreytingum eins og tímaritin þar sem miklar skáldsögur
birtust íyrst sem framhaldssögur. Svo virðist sem þarna sé á ferðinni
hvöt til að holdi klæða orðuð hugtök svo þau verði skynjuninni áþreif-
anleg.
Hvað svo sem fær kvikmyndagesti til að vilja sjá aðlaganir skáldsagna
og kvikmyndagerðarmenn til að framleiða þær og hvaða hættur sem bíða
þessara hópa, blasa staðreyndirnar við. Svo dæmi sé tekið greinir Morr-
is Beja frá því að síðan Kvikmynda-akademían tók að veita verðlaun sín
veturinn 1927-1928 „hafa verðlaunin fyrir „bestu myndina“ í meira en
þrjú skipti af hverjum fjórum gengið tíl aðlagana ... [og] söluhæstu
myndirnar frá upphafí eru jafnvel enn oftar gerðar eftir skáldsögum“.23
Sé þess gætt að vinsælustu frásagnaraðferðirnar á nítjándu og tuttugustu
öld hafa verið skáldsagan og kvikmyndin í þessari röð er kannski engin
furða þótt kvikmyndagerðarmenn hafí leitast við að nýta sér þau við-
brögð sem skáldsagan vekur. I henni hafa þeir séð tilbúið hráefni í þeim
grófa skilningi að hún geymi þegar prófaðar sögur og persónur án þess
þó að þeir veltí sér of mikið upp úr því að hve miklu leyti vinsældir frum-
verksins megi beinlínis rekja til þess að sagan sé í orðum.
Orðræða aðlögimarinnar
Um það að vera tnír
Er þetta í alvöru líkt James? Fylgir hún „Lawrence af tryggð“? Nær hún
„anda Dickens“? A hverju stigi, allt frá gagnrýni í dagblöðum tíl lengri
ritgerða í fræðilegum sýnisbókum og tímaritum, er tryggð við upphaf-
legu skáldsöguna sú mælistika sem flestir dómar um kvikmyndaaðlögun-
22 Anthony Burgess, „Um það vonlausa verk að gera kvikmynd upp úr góðri bók“
[,,On the Hopelessness of Turning Good Books into Films“], New York Times, 20.
ap. 1975, s. 15.
23 Morris Beja, Kvikmyndir og bókmenntir [Film and Literature], Longman: New York,
1979, s. 78.
6o