Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2006, Page 74
BRIAN MCFARLANE
beinni ræðu persónanna. MacCabe býr síðan til hliðstæðu milli þessara
tveggja orðræðutegunda eins og þær birtast í skáldsögtmni og kvik-
myndinni:
Frásagnarprósinn drottnar vegna þess að hann er í stöðu þekk-
ingar og þetta hlutverk þekkingar tekur kvikmyndin upp með
frásögn af atburðum. Þekking sú sem ffásögnin veitir gerir
okkur kleift að kljúfa orðræður hinna ýmsu persóna frá að-
stæðum þeirra og bera það sem sagt er í þessum orðræðum
saman við það sem frásögnin sjálf afhjúpar. Tökuvélin sýnir
okkur það sem gerist - hún segir þann sannleika sem orðræð-
urnar eru bornar við.51
„Tökuvélin sýnir okkur það sem gerist...“ David Bordwell hefur andæft
stigveldisröð orðræðna hjá MacCabe, enda telur hann slíkt leiða til of-
ureinföldunar jafnt á klassísku ravmsæisskáldsögunni sem „margbreytileika
kvikmyndaðra ffásagna“. Hann mótmælir þá sérstaklega hvernig Mac-
Cabe „skipar starfi tökuvélarinnar... ofar annarri tækni kvikmyndarinnar“,
og heldur því þvert á móti fram að „allur efniviður kvikmyndarinnar sé
hluti af frásögninni - ekki aðeins tökuvélin heldur einnig tal, látbragð, rit-
að mál, tónlist, litir, ljósræn vinna, lýsing, búningar, jafnvel rými og hljóð
utan tjaldsins“.52 Það er ákveðin þræmgirni í orðum Bordwells því að
MacCabe notar „tökuvél“, sýnist mér a.m.k., sem ávísun á allt það ffásagn-
arlega efini sem tökuvélin getur sýnt eða gefið í skyn, það er að segja allt í
lista Bordwells nema það sem á við hljóðrásina sem getur að sjálfsögðu
valdið togstreim við sjónrænu myndina. Vissum þátmm frásegðarprósans,
eins og að búa til umhverfi svo og sjálft údit persónanna, má ná fram með
sviðssemingu kvikmyndarinnar. Aðrir þættir, eins og þeir sem gera okkur
kleift að meta ræðu persónunnar fyrir tilstilli raddar rithöfundarins, virð-
ast síður henta auga tökuvélarinnar. Tökuvélin verður í þessari merkingu
að sögumanninum. Hún beinir til dæmis athyglinni að þátmm í sviðssetn-
ingunni eins og útliti leikaranna, hreyfingum þeirra, látbragði eða bún-
ingi, eða því hvernig þeir era staðsettir á sviðinu eða hvernig þeir era
myndaðir. Að þessu leyti kann tökuvélin að fanga „sannleika“ sem fjallar
um og afmarkar það sem persónurnar segja í raun og vera.
51 MacCabe, s. 10.
52 David Bordwell, Frásögn ískáldmynd [Narration in the Fiction Film], Methuen: Lond-
on, 1985, s. 20.
72