Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.12.2006, Page 78
BRIAN MCFARLANE
um framsögn sína en slíkur feluleikur er mun meira áberandi í kvik-
myndinni. Kvikmyndina skortir kannski bókmenntaleg merki um fram-
sögnina eins og persónu og tíð, en framsagnarferlið birtist engu að síð-
ur í þáttum eins og sjónarhorni myndskeiða, römmun þeirra og
innbyrðis tengslum (t.d. varðandi sviðsetningu og myndfléttur). Stofn-
unarkóðarnir og afar einstaklingsbundin notkun þeirra hjá einstökum
kvikmyndagerðarmönnum getur dregið úr eða vakið athygli á framsagn-
arferlum kvikmyndarinnar en þau geta ekki upprætt þessi ferli, ekki einu
sinni þegar „kvikmyndir vekja með okkur,“ eins og Metz skrifar, „þá
kennd að við séum vitni að nánast raunverulegu sjónarspili“.57 I fram-
sögn kvikmynda tilheyrir yfirflutningur skáldsagna á hvíta tjaldið eigin-
legri aðlögun, ekki yfirfærslu. I þeim dæmum sem athuguð eru hér á eft-
ir verður yfirflutningurinn kannaður út frá því að hve miklu leyti
umræddar kvikmyndir sýni gagnvirkni sérlegra kvikmyndakóða og kóða
utan kvikmynda og að hve miklu leyti framsagnarhættir þeirra jafnist á
við - eða reyni að jafnast á við - framsagnarhætti skáldsagnanna sem þær
byggja á.
Eitt meginhlutverk þessarar rannsóknar verður að greina á milli:
(i) Þeirra þátta í viðkomandi skáldsögu sem hægt er að yfirfæra
beint þar eð þeir eru ekki bundnir einhverju tilteknu táknkerfi
- þ.e. þeir eru í reynd frásagnarlegir, og
(ii) þeirra þátta sem taka til margbrotinnar aðlögunar þar eð áhrif
þeirra eru nátengd táknkerfinu sem þeir birtast í - þ.e. fram-
sögninni.
Ég kaus að lokum „framsögn“ fremur en „frásögn“ af því að það síðara
er oft tengt á mjög takmarkandi hátt við það sem lýtur að persónu og tíð.
Með frainsögn á ég við alla þá tjáningartækni sem stýrir framsetningu -
og viðtökum - frásagnarinnar.
Hvemig við skiljum „aðlögun “
Hinn „aðgreinandi þáttur“ aðlögunar, segir Dudley Andrew, er „að sam-
ræma táknkerfi kvikmyndanna við það sem náðst hefur í öðru kerfi“.
Samkvæmt honum er „sérhver frásagnarmynd aðlögun fýrri hugmynda
57 Metz, Imyndaða táknmyndin, s. 4.
7 6